Einnig verður greint frá máli serbnesks karlmanns sem sætir gæsluvarðhaldi hér á landi vegna meintrar nauðgunar á Írlandi árið 2004. Á meðan hann flúði réttvísina í Írlandi dvaldi hann ólöglega hér í fjölda ára.
Þá verður rætt við forstjóra Syndis sem hvetur neytendur til að fá sér sérstakt kort til að nota við innkaup á netinu og þannig minnka hættuna á umfangsmiklum netsvikum. Fyrsti dagurinn í röð afsláttardaga í nóvember er í dag en algengt er að netsvikarar nýti sér kaupgleði almennings í tengslum við þessa daga.
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra mótmæla skerðingu á framlögum ríkisins. Formaðurinn segir það dýrkeypt fyrir hið opinbera að ganga svona fram gegn landsbyggðinni.
Sorpa þarf að endurnýja búnað í jarðgerðarstöðinni Gaju fyrr en áætlað var. Fyrirtækið telur að bilanir í stöðinni skýri stóran hluta kvartana um lykt frá Álfsnesi í sumar og haust. Bæjarstjóri Mosfellsbæjar segir að grípa þurfi til annarra aðgerða ef úrbætur Sorpu duga ekki því íbúar séu orðnir langþreyttir á stöðunni.
Fjölbreyttur fréttatími og þéttur sportpakki á Bylgjunni á slaginu tólf. Umsjónarmaður er Telma L. Tómasson.