Fasteignafélagið Þórkatla kynnti í gær endurkaupaáætlun þar sem Grindvíkingum býðst til að kaupa til baka fasteignir sem keyptar voru eftir eldgos í nágrenni Grindavíkur. Íbúum býðst þrjár leiðir til að flytja til baka, það eru endurkaup, fá eign sína frátekna eða leiga á markaðskjörum. Grindvíkingum er boðið að kaupa eignir með þriggja ára skilarétti á meðan óvissa ríkir vegna eldsumbrota.
Stefnt er að því að þessar leiðir verði í boði í byrjun árs 2027 en forsætisráðuneytið auk Þórkötlu hafa boðað Grindvíkinga til kynningarfundar í dag klukkan fimm í Gjánni í Grindavík. Pétur Georg Markan bæjarstjóri Grindavíkur fagnar því að áætlunin sé komin fram en segir mikilvægt að Grindvíkingar fái tækifæri til að máta sig við hana á fundinum með Þórkötlu.
„Spyrja mikilvægara spurninga og koma þá fram sjónarmiðum sem brenna á fólki. Ég held að það sé mikilvægt og það er líka geysilega mikilvægt að Þórkatla hlusti vel í kvöld og vinni með það í framhaldinu. Í endurreisn bæjarins sem gengur vel þá er þetta eitt mikilvægasta verkefnið.“
Veistu til þess hvort það sé almenn ánægja eða jafnvel óánægja íbúa með þessa tilhögun mála?
„Ég held það sé bara mikilvægt að finna viðbragðið í kvöld. En við verðum líka að gera okkur grein fyrir því að þetta eru ekki hefðbundin fasteignaviðskipti í neinum skilningi. Þetta er í raun og veru björgunaraðgerð sem er nú að verða að endurreisn þannig að það sem endurkaupaáætlun Þórkötlu þarf að innibera er fyrst og fremst að gera það aðgengilegt fyrir Grindvíkinga að koma heim. Það er mikilvægt að það lánist. En endurkaupaáætlun á ekkert skylt við hefðbundin fasteignakaupum og við getum ekki mátað hana við neitt slíkt. Þannig að það er mikilvægt að Grindvíkingar finni það að líflínan ennþá heim sé til staðar og að þau geti notað hana.“
Pétur segir viðeigandi að áætlunin sé kynnt á þeim tímamótum þegar þrjú ár eru síðan fyrstu rýmingar hófust í bænum. Minningarstund var haldin í gær í bænum í tilefni þessa.
„Það var alveg ótrúlega kraftmikil stund, samvera í kirkjunni í gær þar sem kirkjan var pakkfull af fólkinu okkar og við megum ekki heldur gleyma því að þetta, fyrir þjóðinni, er þetta mikilvæg minning. En fyrir Grindvíkinga eru þetta náttúrulega raunverulegar aðstæður ennþá. Það má segja að rýmingin sé ennþá í lífi Grindvíkinga sem eru ennþá að leitast við að koma heim. Þess vegna er endurkaupaáætlun svona ofboðslega mikilvæg og það er mikilvægt að hún endurspegli þarfir Grindvíkinga.“