Öðrum degi þríhliða friðarviðræðna milli Úkraínu, Rússlands og Bandaríkjanna í Abú Dabí er lokið. Viðræðurnar eru þær fyrstu milli þessara þriggja ríkja síðan í febrúar, þegar þeim lauk án niðurstöðu og ráðamenn í Bandaríkjunum beindu sjónum sínum í auknum mæli að Íran.
Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, er ánægður með gang viðræðna og fagnar þeirri breytingu, sem erindrekar Bandaríkjanna gerðu, að bjóða Evrópuríkjum sæti við borðið.
Sendinefnd Úkraínu mun ræða um það sem fram hefur komið í viðræðunum við evrópska bandamenn sína.
Zelensky, sem kom til Kaupmannahafnar í gær til fundar við Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, og Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra, sagði enda í viðtali við danska ríkisútvarpið í gær að hann sæi ekki fyrir sér hvernig tryggja mætti öryggi í Úkraínu að stríði loknu án aðkomu Evrópuríkja.
Viðræðurnar í Abú Dabí í gær og í dag hafa að mestu leyti snúist um öryggistryggingar fyrir Úkraínu eftir stríðslok, þ.e. hvernig tryggja megi að Rússar ráðist ekki aftur inn í landið að nýju síðar. Það mætti til dæmis gera með bandarískum eða evrópskum friðargæsluliðum en stjórnvöld í Moskvu hafa lengi tekið fyrir allar slíkar hugmyndir.
Helsti ásteytingarsteinninn í viðræðunum er sem fyrr hvort semja eigi um öryggistryggingar að undangengnu vopnahléi eða ekki. Úkraínumenn og bandamenn þeirra vilja að gert verði vopnahlé svo hægt sé að setjast við samningaborðið. Rússar segja aftur á móti að það gefi úkraínska hernum tækifæri til þess að ná vopnum sínum og vilja semja á meðan vopnuð átök geisa.
Jared Kushner og Steve Witkoff, erindrekar Bandaríkjastjórnar, hafa viðrað hugmyndir um nýjan ramma um öryggismál í Evrópu. Segja má að NATO-samstarfið hafi verið sá rammi síðustu áratugi. Kushner segir að þessar nýju hugmyndir geti tryggt frið í álfunni næstu árin, áratugina og jafnvel næstu aldirnar.
Í umfjöllun AFP um viðræðurnar í Abú Dabí segir að stjórnvöld víða í Evrópu kvíði því að heyra meira um þennan nýja ramma og hvaða áhrif og afleiðingar róttækar breytingar hefðu fyrir öryggi í álfunni. Einnig óttast þeir að Bandaríkin þrýsti á Úkraínumenn að játa tap í stríðinu og semja um frið á þeim forsendum.
Kushner sagði eftir að viðræðum lauk í gær að tekist hefði að færa stríðandi fylkingar nær hvorri annarri, án þess að fara nánar út í það. Hann vonaði að lausn á stríðinu í Úkraínu væri innan seilingar. Hann sagði viðræðurnar ganga vel, rétt eins og Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði á blaðamannafundi í gær.