Pétur Jóhann greindi frá tíðindunum í hlaðvarpinu Beint í bílinn sem hann heldur úti með Sverri Þór Sverrissyni, grínfélaga sínum til áratuga. Þeir félagar deildu spjalli úr hlaðvarpinu um kattarhljóðið á TikTok í gær.
„Kötturinn hans Péturs er dauður. Hann lifði í rúm tuttugu ár. Hálskirtlatakan fór með hann,“ sagði í lýsingu á klippunni.
„Ég get ekki gert köttinn, ekki lengur,“ sagði Pétur í spjallinu.
„Hvað meinarðu?“ spurði Sveppi þá.
„Hann er dauður,“ svaraði Pétur.
„Kötturinn?“ spurði Sveppi aftur.
„Kattarhljóðið, mitt vörumerki, mitt lífsviðurværi í gegnum árin er bara dautt,“ sagði Pétur í alvarlegur í bragði.
„Þú lýgur því,“ sagði vantrúa Sveppi.
„Dagsatt,“ sagði Pétur.
„Reyndu það,“ bað Sveppi þá.
Því næst reyndi Pétur að taka köttinn en gaf frá sér öllu kraftminna hljóð en vanalega og sagði svo: „Þetta er það næsta sem ég kemst, ég get ekki gert köttinn lengur. Köttinn sem var alltaf alveg kristaltær. Þetta er það besta sem ég get gert.“
„Þetta er staðan, þetta er háalvarlegt mál að mínu mati,“ bætti Pétur svo við.
„Vá, þetta eru einhverjar stærstu fréttir sem ég veit um,“ svaraði Sveppi.
Hvæsti eftirminnilega á Will Smith
Kattareftirherma Péturs Jóhanns hefur verið eitt lífseigasta grínbragð hans gegnum árin. Hann hefur mörgum sinnum tekið köttinn í símaötum í gegnum tíðina og nýtir eftirhermuna oft í uppistandi sínu.
Sennilega er frægasta dæmið um köttinn þegar Pétur fór með Auðunni Blöndal og Sveppa til Lundúna árið 2005 þar sem þeir voru viðstaddir blaðamannafund Wills Smith vegna frumsýningar rómantísku gamanmyndarinnar Hitch.
Auðunn spurði Smith hvort hann byggi yfir einhverjum leyndum hæfileikum og sagði vin sinn geta tekið köttinn. Pétur hvæsti í kjölfarið allhressilega á Smith sem var ansi hreint impóneraður yfir tilþrifunum.
„Þetta er virkilega flott, þetta er ekta hæfileiki,“ sagði Smith og bætti svo við: „Ég gæti komið þér í Letterman, hann býður oft fólki með kjánalega hæfileika.“ Hann væri sjálfur mjög fær í að grípa vínber með munninum.
Hægt er að horfa á strákana á blaðamannafundinum um árið hér að neðan en kattarhljóðið má heyra í seinni hluta klippunnar.