Davidson sagði frá flúrum sínum og margra ára ferlinu sem það hefur tekið að fjarlægja þau á frumsýningu glæpamyndarinnar How To Rob a Bank í New York í gær.
„Þetta er hrottafengið,“ sagði Davidson í viðtali við E! News á frumsýningunni og var einmitt klæddur í síðerma prjónapeysu. „Þú veist ekki hvað er í gangi þarna undir,“ bætti hann við.
Hinn 32 ára Davidson var kominn með um tvö hundruð húðflúr vítt og breitt um líkamann þegar hann ákvað árið 2020 að ráðast í að fjarlægja þau. Vegna fjöldans hefur ferlið tekið um sex ár og í janúar 2025 sagði hann húðflúrin „nánast horfin“.
Davidson stefnir á að halda um tveimur til þremur flúrum en grínaðist hins vegar með að „þau gætu komið aftur“ og í apríl síðastliðnum fékk hann sér einmitt húðflúr á höfuðið með nafni dóttur sinnar, Scottie.
„Þau brenna af lag af húðinni þinni og síðan þarf það að gróa í um sex til átta vikur. Þú getur ekki verið úti í sólinni. Og svo þarftu að gera það tólf sinnum til viðbótar,“ sagði hann um ferlið.
Davidson viðurkenndi jafnframt að húðflúrin hefðu haft áhrif á leiklistarferil sinn því hann hefði þurft að eyða allt að þremur klukkustundum hjá sminkum við að fela flúrin. „Af einhverjum ástæðum er fólk í bíómyndum ekki með það mörg húðflúr,“ sagði Davidson í viðtali við Seth Meyers.
Davidson hefur meðal annars látið fjarlægja húðflúr sem voru tileinkuð kærustum sínum, Ariönu Grande, Kim Kardashian og Cazzie David en þær eru fyrrverandi kærustur hans í dag.