Banks er 52 ára og er þekktust fyrir þættina America's Next Top Model sem hún stýrði í 23 þáttaraðir. Í þáttunum keppast ungar stúlkur um samning hjá fyrirsætufyrirtæki. Þættirnir hafa verið gagnrýndir í seinni tíð, meðal annars í þáttunum Reality Check: Inside America's Next Top Model sem komu út á Netflix á þessu ári.
Í viðtali við HOT 97 segir Banks að hún og Bélanger-Martin, sem hún byrjaði með 2019, séu hætt saman.
„Ég er 52 ára og einhleyp. Ég var smá búin með þennan pakka. Ég meina, ég er með mömmu mína og son minn og ég er góð. Ég var ekki með neinn drifkraft. En nú hugsa ég að þetta sé ekki of seint. Ég er aftur byrjuð að deita,“ segir Banks.