Örn Viðar Skúlason, framkvæmdastjóri Fasteignafélagsins Þórkötlu, tilkynnti síðdegis í gær að félagið hefði ákveðið að fresta kynningarfundum um nýja endurkaupaáætlun eftir hitafund með Grindvíkingum kvöldið áður.
Til stæði að fara yfir þær ábendingar sem fram komu á fundinum og boða frekari fundi að því loknu.
Verðið ofarlega í huga en ekki það eina sem skiptir máli
Pétur Markan, bæjarstjóri Grindavíkur, telur þá ákvörðun eðlilega, miðað við fundinn á miðvikudag.
„Þar var ljóst að endurkaupaáætluninni var hafnað og þar kom líka fram vantraust á vinnubrögð Þórkötlu, þannig að það er mikilvægt að Þórkatla hugsi sitt ráð núna og það er væntanlega það sem þau eru að gera.“
Hann vonist til þess að Þórkatla verði í góðu sambandi við Grindvíkinga og bæjaryfirvöld um það hver næstu skref verða og hvernig útfærsla endurkaupaáætlunarinnar verður.
En hvaða breytingar vilja Grindvíkingar?
„Það er ofarlega í huga að kaupverðið er eitthvað sem þarf að taka til endurskoðunar. Það eru líka tímafrestir í þessari endurkaupaáætlun sem ganga ekki upp og þurfa að endurskoðast. En fyrst og fremst er bara endurkaupaáætlunin þannig að allar fjárhagslegar skuldbindingar á þessu stigi eru óraunhæfar. Þannig að, og þetta kom bara mjög glögglega fram á fundinum og skýrlega, þetta er það sem Þórkatla þarf að endurskoða núna og ég trúi að hún geri það.“
Þórkatla hafi tapað trausti Grindvíkinga
Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar sendi frá sér yfirlýsingu síðdegis í gær þar sem sagði að niðurstaða íbúafundarins á miðvikudag hefði verið afdráttarlaus.
„Grindvíkingar treysta ekki stjórn og stjórnendum Fasteignafélagsins Þórkötlu og hafna endurkaupaáætlun félagsins í núverandi mynd. Þeim finnst félagið hvorki hlusta á Grindvíkinga né skilja aðstæður þeirra. Eftir þrjú ár af strjálum samskiptum og einhliða ákvörðunum Fasteignafélagsins Þórkötlu treysta þeir ekki félaginu,“ sagði meðal annars í yfirlýsingunni.
Pétur tekur undir með bæjarstjórninni.
„Grindvíkingar treysta ekki Þórkötlu og þessum vinnubrögðum og það leiddi náttúrulega til yfirlýsingar bæjarstjórnar í gær, sem einfaldlega gaf frá sér yfirlýsingu um það að hún vantreysti þessum vinnubrögðum Þórkötlu. Það er grundvallaratriði sem Þórkatla verður að taka ábyrgð á núna. Það er alveg sama hvernig endurkaupaáætlun eða hvaða áætlun það er sem þú ætlar að kynna. Þú verður að hafa traust og trúnað Grindvíkinga og það er eitthvað sem Þórkatla verður að taka sig á og vinna til baka. Annars er ekki hægt að kynna neina endurkaupaáætlun.“
Sakna þess að samráðið hafi ratað inn í áætlunina
Pétur segir að Þórkatla hafi fengið mýmargar ábendingar, tillögur og kröfur frá stjórnvöldum í Grindavík um það hvernig endurkaupaáætlunin þurfi að líta út til þess að hún beri tilætlaðan árangur. Það hafi ekki allt skilað sér inn í áætlunina og það sé meginástæðan þess að niðurstaðan varð þessi á miðvikudag.
„En það þýðir bara eitt. Nú þurfum við bara að leggjast yfir þetta. Þórkatla þarf náttúrulega að hugsa upp endurkaupaáætlunina aftur og koma með áætlun sem er raunhæf, tekur til aðstæðna sem eru hérna í Grindavík og leysir aðstæður fólksins sem var gert að rýma fyrir þremur árum og er enn þá að bíða eftir lausninni, hvernig vegurinn er varðaður heim. Og við skulum ekki gleyma, þetta er varðað í lög.“
Þrátt fyrir allt þetta segir hann að góður hugur sé enn í Grindvíkingum.
„Mér finnst hljóðið kraftmikið og það er ofboðsleg samstaða í Grindavík og samheldni. Það finnst sérstaklega, síðast á fundinum á miðvikudaginn, hvað fólk er einhuga um endurreisnina og hvað það er tilbúið í þetta verkefni. En það þarf að vera aðgengilegt. Stjórnvöld og Þórkatla þurfa að búa til endurkaupaáætlun sem gerir fólki kleift að taka til hendinni og hefja endurreisnina af krafti.“