Þeir kröfðust þess að allir hermenn NATO og hergögn yrðu flutt frá ríkjum sem gengu til liðs við bandalagið eftir árið 1997 og að engar heræfingar yrðu framkvæmdar í Austur-Evrópu, Kákasusfjöllum eða Mið-Asíu í framtíðinni.
Þá fóru Rússar fram á það að Bretar og Frakkar hétu því að beita ekki kjarnorkuvopnum sínum til að verja önnur ríki Evrópu utan NATO.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í skjali sem erindrekarnir rússnesku deildu á fundinum í Abu Dhabi og blaðamenn New York Times hafa komið höndum yfir.
Sömu kröfur og fyrir stríð
Kröfur þessar eru nánast þær sömu og kröfur Rússa fyrir innrásina í Úkraínu. Þá krafðist Vladimir Pútín þess að ríkjum Austur-Evrópu, eða þeim ríkjum sem gengu til liðs við bandalagið eftir 1997, yrði vísað úr NATO.
Það eru Pólland og öll önnur ríki Austur-Evrópu, sem myndu falla í þann flokk: Tékkland, Ungverjaland, Búlgaría, Eistland, Lettland, Litáen, Rúmenía, Slóvakía, Albanía, Króatía, Svartfjallaland, Norður-Makedónía og einnig nýjustu aðildarríkin tvö: Finnland og Svíþjóð.
Sjá einnig: Sagðir krefjast þess enn að NATO hörfi frá Austur-Evrópu
Pútín gaf til kynna á öryggisráðstefnu í Rússlandi í byrjun október að hann liti á alla Austur-Evrópu sem „söguleg svæði“ Rússlands og kvartaði yfir veru NATO þar.
Í ávarpi sínu á ráðstefnunni syrgði Pútín einnig fall Sovétríkjanna og sakaði Vesturlönd um að reyna að sölsa undir sig stóran hluta arfleifðar Sovétríkjanna. Það hefði leitt til þeirra átaka sem standa nú yfir. Hann hefur oft talað um þetta sem „grunnástæður“ eða „rætur“ stríðsins í Úkraínu.
Í ræðunni sem hann hélt sagði Pútín að NATO hefði ekki átt að koma fyrir herstöðvum á „sögulegum svæðum okkar“ og varpaði fram lygum um valdarán í Úkraínu og útrýmingarbúðir fyrir Rússa þar.
Vilja ekki ræða Evrópu við Evrópumenn
Eins og áður segir bendir skjalið sem Rússarnir dreifðu í Abu Dhabi til þess að Rússar hafi lítið sem ekkert breytt kröfum sínum frá því fyrir innrásina í Úkraínu. Undanfarið hafa Pútín, erindrekar hans og ráðamenn ítrekað kallað eftir umfangsmiklum breytingum á skipulagningu öryggismála í allri Evrópu.
Þetta hafa þeir rætt við erindreka Donalds Trump og forsetann sjálfan á sama tíma og þeir hafa ekki viljað hleypa erindrekum frá Evrópu að samningaborðinu.
Rússar hafa ekki viljað leyfa Evrópu að koma að viðræðunum á þeim grunni að ríki Evrópu aðstoði Úkraínumenn í að verjast innrás Rússa með fjármunum og hergögnum. Þá hafa ráðamenn í Rússlandi ítrekað sakað Evrópumenn um að standa í vegi friðar með þessari aðstoð og með því að vilja ekki taka til skoðunar tillögur Rússa um endurskipulagningu öryggismála í heimsálfunni.
Sjá einnig: Evrópa verði fyrst að leggja eitthvað af mörkum
Pútín og ráðamenn hans hafa lengi reynt að reka fleyg milli Bandaríkjanna og Evrópu og þá meðal annars með því að saka ráðamenn í Evrópu um að standa í vegi þess að Trump geti bundið enda á stríðið í Úkraínu.
Evrópskir erindrekar hafa nýlega bent á að margs konar stofnunum og samþykktum hafi verið ætlað að tryggja frið í Evrópu. Rússar hafi ítrekað grafið undan þeim og brotið gegn þeim á undanförnum árum.
Líta til Sovétríkjanna og kalda stríðsins
Umrætt skjal er sagt tákna upphafsstöðu Rússa í samningunum og er tekið fram að Pútín gæti verið tilbúinn til að sætta sig við breytingar, samkvæmt heimildarmönnum NYT sem tóku þátt í viðræðunum.
Rússneskir erindrekar gerðu þó ljóst í viðræðunum í Abu Dhabi að þeir sæju tíma kalda stríðsins og Varsjárbandalagsins, sem Sovétríkin leiddu, fyrir sér sem fordæmi fyrir því hvernig halda ætti á spöðunum varðandi öryggismál í Evrópu.
Sjá einnig: Vill fara eftir landamærum sem hann teiknaði sjálfur
Á þessum tíma vofðu kjarnorkuátök yfir Evrópu og heiminum öllum. Rússarnir héldu því fram að það hvernig mismunandi áhrifasvæði Bandaríkjanna og Sovétríkjanna og samskiptaferlar sem voru þróaðir þá hefðu í raun komið í veg fyrir að átök brytust út.
Bandarískur heimildarmaður NYT segir að þeir Jared Kushner og Steve Witkoff, sérstakir erindrekar Trumps, hafi sagt Rússunum að margt hafi breyst frá árinu 2021, þegar Rússar vörpuðu kröfum sínum fram fyrst. Þá munu þeir hafa hvatt Rússa til að líta frekar til framtíðarinnar.