Orkan hefur brotið gegn banni Neytendastofu á fullyrðingum um að félagið bjóði upp á lægsta eldsneytisverð landsins, samkvæmt nýrri ákvörðun stofnunarinnar. Neytendastofa hefur því sektað Orkuna um 1,3 milljónir króna.
Árið 2021 ákvað Neytendastofa að Orkan hefði viðhaft villandi og óréttmæta viðskiptahætti með fullyrðingum um „lægsta verðið“ í auglýsingum á eldsneytisstöðvum félagsins.
Í nýrri ákvörðun Neytendastofu segir að henni hafi borist upplýsingar um áframhaldandi markaðssetningu Orkunnar þar sem skírskotað sé til þess að lægsta verðið sé hjá Orkunni.
Ekki hefðbundnar auglýsingar
Svar Orkunnar í mars hafi verið á þá leið að félagið telji umræddar fullyrðingar ólíkar þeim sem bannið náði til. Þá hafi ekki verið um hefðbundnar auglýsingar að ræða.
„Þannig lúti fullyrðingarnar um „lægsta verðið“ að því að lægsta verð Orkunnar bjóðist á tilteknum stöðvum sem tilgreindar séu ýmist í bakgrunni tilkynninganna eða undir fyrirsögn þeirra en ekki t.d. að Orkan bjóði lægsta verðið af öllum söluaðilum eldsneytis á öllu höfuðborgarsvæðinu líkt og aðstaðan hafi verið í áðurgreindri ákvörðun Neytendastofu.“
Við fyrri ákvörðun hafi N1 tekist að sýna fram á að ÓB og Dælan hefðu boðið upp á lægra eldsneytisverðið en Orkan í febrúar 2021. Nú liggi hins vegar ekkert fyrir um að samkeppnisaðilar Orkunnar hafi boðið upp á lægra eldsneytisverð í samanburðarhæfum viðskiptum.
Neytendastofa segir óumdeilt að megininntak fullyrðinga Orkunnar hafi verið vísun til lægsta verðsins og álítur stofnunin að birting ósannaðra fullyrðinga þar sem vísað er til lægsta verðsins hafi brotið gegn banninu frá 2021.