Díana er ein sex forstjóra heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni sem sendu fjárlaganefnd minnisblað í vikunni. Forstjórarnir sex áætla að samanlagður rekstrarhalli stofnananna verði um fimm milljarðar króna í ár ef viðbótarfé fæst ekki. Sú fjárhæð muni bætist við halla fyrri ára.
Díana segir í samtali við fréttastofu að reksturinn hafi verið þungur síðustu tvö ár.
„Við erum náttúrulega með gríðarlegan fjölda af ferðamönnum og þarna eru þung slys og annað sem að við erum kannski fyrst á vettvang með þó svo að þjónustan fari oft líka inn á Landspítala.“
Sjúklingar liggja lengi inni
Heilbrigðisstofnun Suðurlands hefur óskað eftir auknum fjárheimildum og ítrekað bent á að kostnaður við bráðaþjónustu hafi aukist.
„Bráðadeildin okkar hefur vaxið gríðarlega og er orðin þyngri en hún hefur verið. Við erum með mikið af inniliggjandi sjúklingum lengi hjá okkur sem við höfum engin úrræði fyrir," segir Díana.
Forstjórarnir benda á í minnisblaðinu að ráðuneytið hafi ítrekað að stofnanirnar verði að halda rekstrinum innan fjárheimilda, sem þeir telja að geti haft veruleg áhrif á þjónustuna.
Vilja aukið fé til frambúðar
Þeir rekja hallann fyrst og fremst til aukins launakostnaðar vegna kjarasamninga sem ríkið gerði í árslok 2024 og að sá kostnaður hafi aðeins verið bættur að hluta. Breytt vaktafyrirkomulag lækna hafi meðal annars kallað á fleiri stöðugildi og aukið kostnað við afleysingar.
Forstjórarnir vilja að fjárveitingar í fjárlögum næsta árs taki mið af því hvað kostar að halda úti þjónustunni. Díana segist enn ekki hafa fengið vísbendingar um að orðið verði við óskum þeirra.
„Við vitum alveg að það eru ekki einhverjir sjóðir sem bíða eftir okkur en við teljum mikilvægt að benda á vandamálið.“