Spilin eru metin að andvirði milljón danskra króna að því er fram kemur í umfjöllun DR, eða 20 milljóna íslenskra króna.
Talið er að fimm grímuklæddir menn hafi brotist inn í verslunina í Lyngby Storcenter og farið þar ránshendi um Pokémon-spil. Lögreglan á Norður-Sjálandi ræsti út meirihluta af ökutækjum sínum í leitina.
Lögregla telur líkur á því að þjófarnir séu vopnaðir og að sögn TV2 hótuðu þeir starfsfólki verslunarinnar með hlut sem líktist skammbyssu. Ránið varð í versluninni Rogerz.
Lögreglan lýsir sömuleiðis eftir rauðum bíl af tegundinni Mazda. Lögreglu hafa borist ábendingar um að slíkur bíll hafi sést stefna á fleygiferð í átt að höfuðborginni Kaupmannahöfn.
Pokémon-spil, sem eru mörg hver verulega verðmæt, hafa að sögn TV2 verið notuð í undirheimunum, meðal annars til að þvætta peninga. Þetta er langt því frá að vera fyrsta Pokémonspilaránið í Danmörku, í gær var spilum stolið úr verslun í Hørsholm en sama verslun lenti í ráni í sumar þar sem spilum að andvirði 100 þúsund danskra króna var stolið (um 2.m.kr.).
Verslunarmiðstöðin birti færslu vegna málsins. „Þetta er náttúrulega grafalvarlegt mál sem við lítum mjög alvarlegum augum,“ segir í yfirlýsingu verslunarmiðstöðvarinnar.