Fyrrverandi rannsóknarmaður hjá Lundúnalögreglunni, Warren Arter að nafni, hefur orðið uppvís að því að ljúga til um andlát eiginkonu sinnar. Hann sætti einnig rannsókn fyrir kynferðislega misnotkun brotaþola sem honum var ætlað að vernda.
Arter kynntist Rebekuh, tilvonandi eiginkonu sinni, þegar hún tilkynnti lögreglu um heimilisofbeldi sem honum var falið að rannsaka. Hann beitti hana svo sjálfur margs konar ofbeldi í áratug.
Rannsókn á andláti hennar í hótelherbergi á Barbadoseyjum fyrir tveimur árum var í skötulíki að mati rannsóknarblaðamanna þáttarins Panorama á BBC. Arter svipti sig lífi nokkrum dögum eftir að hann sneri heim frá Barbados og var handtekinn vegna gruns um brot gegn annarri konu.
Lögregluyfirvöld fóru illa með sönnunargögn og yfirheyrðu ekki vitni
Lögregluyfirvöld á eyjunum fóru illa með sönnunargögn, tóku ekki lífssýni og yfirheyrðu hótelstarfsfólk ekki nægilega um undarlega hegðun Arters fyrir og eftir andlátið. Einnig er óútskýrt hvers vegna meinafræðingur skemmdi líffæri Rebekuh við krufningu.
Arter sagði hana ýmist hafa hnigið niður og rekið höfuðið í og tilkynnt hótelstarfsfólki það eða að hann hafi vaknað og fundið hana látna. Dánarorsök Rebekuh liggur ekki enn fyrir.
Lundúnalögreglan sendi heldur ekki rannsóknarteymi til Barbados þrátt fyrir beiðni um ítarlega rannsókn í ljósi meintra brota Arters og þrábeiðni fjölskyldu hennar. Lögreglan ber fyrir sig í svari til Panorama að ekkert hafi bent til saknæms athæfis.
Arter annaðist rannsókn á máli Rebekuh eftir að hún flúði úr ofbeldissambandi árið 2006, eins og áður sagði. Hann reyndi strax að binda trúss sitt við hana og skömmu síðar var hann fluttur inn á hana.
Þremur árum síðar var Arter settur yfir rannsóknardeild nauðgunarmála í suðvesturhluta Lundúnaborgar. Honum var vikið úr starfi vegna rannsóknar á meintum brotum gegn átta fórnarlömbum kynferðisofbeldis en var aldrei sakfelldur fyrir það.
Arter hélt fullum launum rannsóknarlögreglumanns í sjö ár áður en hann var endanlega rekinn árið 2023 vegna fíkniefnabrota. BBC kveðst hafa í höndum myndskeið sem sanni að Arter hafi beitt eiginkonu sína heimilis- og kynferðisofbeldi ásamt því sem hann neyddi hana til að taka eiturlyf.
Starfsfólk hótelsins segir hegðun Arters mjög furðulega
Í viðtölum Panorama við starfsfólk lúxushótelsins á Barbados kemur fram að Arter hafi hegðað sér mjög undarlega kvöldið sem Rebekah lést. Tveir segjast hafa segjast hafa komið inn á herbergið eftir að Arter tilkynnti um vanlíðan eiginkonunnar og strax áttað sig á að hún væri dáin.
Öryggisvörður segist hafa komið í veg fyrir að Arter færi út að skemmta sér áður en sjúkralið kom. Þá hafi Arter grátið krókódílatárum og látið sem hann ætlaði að beita Rebekuh hjartahnoði þrátt fyrir að varir hennar væru orðnar bláar.
Einnig virtist ekkert benda til að hún hefði dottið og rekið höfuðið í húsgagn eins og Arter staðhæfði en blóðblettir voru á rúminu, veggnum og annars staðar í herberginu. Öryggisvörðurinn segist telja að Arter hafi reynt að búa til sögu sem gengi upp en ekkert sem hann sagði gerði það.
Hann segist einnig hafa sagt lögreglu hvað hann hefði upplifað en að hann hafi aldrei verið formlega yfirheyrður. Panorama segir einnig að misræmis gæti í skilaboðum Arters til vina og fjölskyldu Rebekuh, hann hafi meðal annars fullyrt að hún hefði kafnað eða að ólyfjan hefði verið blandað í drykk sem hún neytti.
Hann sagði tengdadóttur Rebekuh að þau hefðu sofið 18 klukkustundir og að hún hefði legið örend við hlið hans þegar hann vaknaði. Tengdadóttirin segir augljóst að Arter hafi logið purkunarlaust og hann hafi steingleymt hvað hann sagði öðrum.
Barbados-lögreglan hneppti Arter í stutt varðhald en sleppti honum fljótlega og einn lögreglumannanna þvertók fyrir að ræða við Panorama án borgunar. Hann sagðist enn hafa ljósmynd af líki Rebekuh í símanum sínum.