Sigurður Ingi kom fyrst inn á þetta atriði í óundirbúnum fyrirspurnum, þá í fyrirspurn til Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra, en hann kvaddi sér svo hljóðs í lok fyrirspurnartíma, þá til að bera af sér sakir og ítreka umkvörtunarefni sitt.
„Ég hafði orð á því í fyrirspurn minni að mér hafi ekki þótt það stórmannleg framkoma af hálfu þingflokks Samfylkingarinnar og þingflokksformanns Viðreisnar og fleiri þingmanna þar, að veitast að mér fjarstöddum,“ sagði Sigurður Ingi í upphafi stuttrar ræðu sinnar. Að þingheimi hafi mátt vera fullkunnugt um að hann hafi verið á vegum utanríkismálanefndar þingsins í Japan.
Lélegt hjá fjármálaráðherra
Umfjöllunarefnið voru orð hans sjálfs þess efnis að fyrirkomulag við skipan í stjórnir fjármálafyrirtækja hefði verið sett í hans tíð; að starfsmenn fjármálaráðuneytisins hefðu laumað í gegn. En um þetta hefur verið fjallað í fjölmiðlum.
Sigurður Ingi vildi meina að Daði Már hefði í svari sínu stráð salti í sárin með því að nefna að hann hefði viljað henda starfsmönnum fjármálaráðuneytis undir rútuna.
„Mér fannst það lélegt af hæstvirtum ráðherra í seinna andsvari sínu að ákveða að veitast að mér, að ég væri að ganga eitthvað gegn starfsmönnum ráðuneytisins. Í stað þess að svara mér spurningunni um traust til stjórnar Landsvirkjunar,“ sagði Sigurður Ingi.
Þeim mun ekki takast að æsa mig upp
Sigurður Ingi hafði jafnt og þétt hækkaði róminn og sló nú í ræðupúltið máli sínu til stuðnings.
Þá verður kurr í þingsal og Sigurður Ingi sagði: „Hér gapa menn í hliðarherbergjum en þeim mun ekki takast að æsa mig upp.“
Þá verður nokkur hlátur í salnum, væntanlega vegna þess að Sigurður Ingi virtist þá þegar orðinn nokkuð æstur.
„Þeir hlæja oft hæst og tómast sem hafa yfir minnstu að hlæja,“ sagði Sigurður Ingi og beindi máli sínu til þeirra sem þótti hann kominn í mótsögn við sjálfan sig.
„Ef málið er þannig vaxið að stjórnin telur þetta mál algjörlega frábært, hverjum er þá verið að henda undir rútuna? Hvers konar vitleysa er þetta? Staðreyndin öll og sagan er sú, sem ég hef margítrekað farið yfir, þessu var laumað í gegn. En fjármálaráðherra svarar því ekki.“