Í tilkynningu á vef Reykjavíkurborgar segir að um sé að ræða skólastjórnendur og starfsfólk í leik- og grunnskólum borgarinnar, frístundastarfsfólk, fulltrúa foreldra og nemenda, fulltrúa frá Kennarasambandi Íslands og Heimili og skóla.
Auk þess munu kjörnir fulltrúar í borgarstjórn Reykjavíkur, sem sæti eiga í leikskóla- og daggæsluráði og skóla- og frístundaráði, taka þátt í fundinum sem skóla- og frístundasvið skipuleggur.
Þar segir enn fremur að fundurinn verði byggður upp á borðavinnu þar sem rædd verða ólík málefni sem tengjast menntamálum. Í samtali við Björgu Magnúsdóttur í morgun sagði hún að borgaryfirvöld vilji auka námsárangur barna og að skólarnir séu eftirsóttir vinnustaðir.
„Við ætlum til dæmis að tala um hvernig við meiri árangri í PISA-greinunum, það er íslensku, stærðfræði og vísindum. Við ætlum líka að tala um nemendur með erlendan bakgrunn, íslensku sem annað mál, starfsþróun, starfsumhverfi, skólabraginn í skólanum okkar og hvernig við mælum, hvað erum við að mæla, hvernig tengjum við allar mælingar saman og hvernig vinnum við með þær,“ sagði Björg sem er oddiviti Viðreisnar í borginni.
„Þannig að það er ýmislegt undir og fjölmargir þættir en þess vegna einmitt er mikilvægt að fá öflugan fólk og öflugan hóp úr ólíkum áttum til að að spjalla saman um þetta allt.“
Ertu bjartsýn á að allir sem taka þátt í fundinum muni ganga í takt?
„Ég er alla vega bjartsýn á það að fólk komi með opinn hug og hafi stórar og góðar hugmyndir um það hvert skal stefna. Ég veit alveg að við verðum aldrei sammála um allt en ég held að við séum nokkuð sammála um ákveðna lykilþætti sem við getum þá reynt að halda einbeitingunni á að ræða og aðgerðabinda.“