Óskýrt regluverk, tafir og erfið samskipti koma niður á rekstrinum

Óskýrt regluverk, tafir og erfið samskipti koma niður á rekstrinum

Óskýrt regluverk, tafir og erfið samskipti koma niður á rekstrinum

„Það sem er mjög sláandi er hve stór hluti stjórnenda hefur lent í flækjum vegna regluverks, reglna sem eru ekki skýrar eða afgreiðslu hjá stjórnsýslunni sem er ófyrirsjáanleg eða dregst á langinn,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.

Spegillinn ræddi við hann að loknum fundi sem samtökin héldu í Hörpu 12. nóvember.

Á fundinum var kynnt ný könnun á viðhorfi og reynslu stjórnenda iðnfyrirtækja af opinberri stjórnsýslu. Þar kom meðal annars fram að:

  • Um 72% stjórnenda fyrirtækja í iðnaði telja að einfaldari og skýrari reglur og styttri og fyrirsjáanlegri afgreiðsla myndu hafa mjög eða frekar mikil jákvæð áhrif á rekstur þeirra.
  • Styttri og fyrirsjáanlegri afgreiðsla hins opinbera og einfaldari og skýrari reglur myndu skila mestum ávinningi fyrir rekstur þeirra, mun meiri en lækkun gjalda vegna eftirlits og leyfa.
  • Málsmeðferð hins opinberra olli töfum eða frestun á verkefnum eða fjárfestingum hjá 58% fyrirtækja á síðasta fulla rekstrarári og hjá 21% voru tafirnar verulegar.
  • Um 64% fyrirtækja þurftu að skila sömu eða sambærilegum upplýsingum til fleiri en eins opinbers aðila á síðasta fulla rekstrarári og 40% þrisvar eða oftar.

Mun þyngri reglubyrði en í Evrópusambandinu

Megintilefni fundarins var að fjalla um tækifæri til einföldunar á regluverki og stjórnsýslu. Miðað við það sem kom fram á fundinum er töluvert um þau.

Sigurður benti á að samkvæmt niðurstöðum norrænu ráðherranefndarinnar mældist Ísland nú með þyngri reglubyrði en þau lönd sem við berum okkur helst saman við. Á kvarðanum 0-6 fékk Ísland 2,7, Noregur 2,3 en meðaltal ESB er 1,5.

Sigurður segir að niðurstaðan sýni annars vegar að hér séu meiri og þyngri reglur og hins vegar að hér sé meira flækjustig í stjórnsýslunni. Gullhúðun ESB-reglna, að þær séu innleiddar með óþarflega ströngum hætti, ráði miklu. „Ég myndi halda að það séu hátt í eitt þúsund dæmi um gullúðun í íslensku regluverki, svona miðað við þær upplýsingar sem við höfum,“ segir Sigurður. Þetta valdi því að hér verði til færri störf og minni verðmæti sem komi niður á lífskjörum.

Góð reynsla af Vinnueftirlitinu, slæm af byggingafulltrúum

Í könnuninni voru stjórnendur líka spurðir um reynslu sína af samskiptum við 13 opinbera aðila. Vinnueftirlitið fékk bestu dómana en rúmlega 60% sögðu reynslu af samskiptum jákvæða. Versta reynslan var af samskiptum við embætti byggingafulltrúa en 40% sögðu hana hafa verið neikvæða.

En getur ekki verið að þeir sem svöruðu séu bara óánægðir með niðurstöðuna frekar en vinnubrögð viðkomandi stofnana?

„Það getur verið að fólk sé kannski ekki alltaf ánægt með niðurstöðuna. En það breytir því ekki að stofnanirnar eru ólíkar og með vinnubrögð sumra stofnana ríkir heilt yfir ánægja,“ segir Sigurður. Talsverð óánægja sé á hinn bóginn með vinnubrögð annarra. „Og við sjáum það til að mynda með embætti byggingarfulltrúa [...] þá verðum við að horfa til þess að það eru 50-60 embætti byggingarfulltrúa á landinu, sem þýðir að það eru 50-60 útgáfur af byggingarreglugerðinni vegna þess að á hverjum stað er túlkunin ólík. Þannig að það sem má í Garðabæ gengur ekki í Mosfellsbæ svo dæmi sé tekið,“ segir Sigurður.

Einnig séu skýr dæmi um að túlkun á því hvernig eigi að framfylgja reglum breytist, jafnvel þótt lög eða reglur hafi ekkert breyst. Þetta hafi meðal annars komið fram í tengslum við skattahvata til rannsókna og þróunar. „Þær endurgreiðslur hafa gengið mjög illa núna um talsvert skeið. Lögin breyttust ekkert en framkvæmdin breyttist,“ segir Sigurður. Þetta hafi valdið mörgum fyrirtækjum erfiðleikum. Talsvert sé einnig um slík dæmi hjá Skattinum en skattalögin hafi þó ekkert breyst. „En túlkunin hefur breyst og þetta kallar stundum jafnvel á margra ára baráttu bara til þess að fá úr því skorið hvaða reglur gilda.“

Á fundinum var rætt við Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra sem sagði að í stjórnsýslunni væri unnið að einföldun og auknu gagnsæi.

Tíu tillögur um einföldun

Á fundinum voru kynntar tíu tillögur samtakanna um hvernig hægt er að einfalda regluverkið og draga úr flækjum og er ítarlegri útgáfa á vef samtakanna.

Fyrirsjáanleg framkvæmd

  1. Aukið gagnsæi við afgreiðslu mála og lögbundin tímamörk virt.
  2. Sambærileg mál fái sambærilega afgreiðslu.
  3. Frammistaða stofnana mæld og birt.
  4. Frekari sameiningar með mælanlegum markmiðum um betri þjónustu.
  5. Athugasemdir stofnana komi fram á fyrstu stigum.
  6. Gögnum skilað einu sinni til sömu stofnunarinnar.
  7. Skráning í stað starfsleyfis þar sem áhætta er lítil. Áfram verði haldið að endurskoða grundvöll starfsleyfis fyrirtækja eftir áhættumati.

Regluverk og lagasetning

  1. Einföldun verði viðvarandi verkefni.
  2. EES-reglur án gullhúðunar og skipulögð afhúðun.
  3. Innleiðing lagabreytinga taki mið af áhrifamati.

Ekki hefur tekist að fá niðurstöður á sex árum

Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, sat í pallborði á fundinum og ræddi meðal annars um mál sem hún sagði að hefði þvælst í kerfinu í um sex ár. Í viðtali við Spegilinn sagði hún að málið snerist um hvernig svínabú gætu losað sig við skít og hland sem kemur undan dýrunum. Ný túlkun á reglugerð hefði valdið því að málið sé í uppnámi. Boðuð hafi verið ný reglugerð um velferð dýra sem tæki gildi 2028. Hún kalli á miklar fjárfestingar sem erfitt sé að fara í þegar ekki liggur fyrir hvernig eigi að meðhöndla úrganginn.

Málið hafi komið á borð samtakanna 2020 sem þá hafi farið til umhverfisráðuneytisins og óskað eftir svörum. Það hafi líka verið á borði atvinnuvegaráðuneytisins og einnig hjá Umhverfis- og orkustofnun og heilbrigðiseftirlitum. Það hafi líka tafist þegar nýir starfsmenn komu að því, starfshópur hafi verið skipaður en formaður hans farið til annarra starfa og á meðan hafi starfið legið niðri. „Þannig að lausnir sem við höfum verið að óska eftir allan þennan tíma eru ekki enn fram komnar og málið er í töluverðum hnút,“ sagði hún. Eftirlit sé af hinu góða en kröfurnar þurfi að vera í samræmi við ávinninginn og ekki eigi að ganga lengra en þekkist í nágrannalöndum okkar til að passa upp á samkeppnishæfni greinarinnar.

Setja nógu mikið af reglum til að koma í veg fyrir annað hrun

Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins, telur að mikill vöxtur regluverks hér á landi eigi rætur sínar í hruninu og trausti til traust sem þá hafi glatast í garð atvinnulífsins. Til þess að koma í veg fyrir annað hrun hafi verið litið svo á að það þyrfti bara að setja nógu mikið af reglum sem endar með því að ekki verði hægt að gera nokkurn skapaðan hlut.

„Ég held að við þurfum að staldra hér aðeins við og horfa á hvernig við getum endurreist traust í samfélaginu, traust gagnvart atvinnulífinu.“ Þetta vantraust sé mjög óheilbrigt. Þorri atvinnurekenda starfi af heiðarleika þótt auðvitað séu alltaf einhver dæmi um fólk sem brýtur lög, hvort sem það er í atvinnulífinu eða samfélaginu almennt. Ná þurfi afbrotamönnum en það megi ekki sliga þá sem reyna að starfa af heiðarleika og samviskusemi með sífellt þyngra og þyngra regluverki.

Virðingarleysi fyrir tímamörkum

Þorsteinn er líka forstjóri eignarhaldsfélagsins Hornsteins sem á BM Vallá og Björgun-Sement. Hann segir fjölmörg dæmi um að þungt regluverk og alls kyns flækjur hafi haft áhrif á rekstur þessara félaga. Undanfarin sex ár hafi verið unnið að flutningi á starfsemi BM Vallár. Skipulagsferlar, leyfisveitingar, ófyrirsjáanleiki, virðingarleysi fyrir tímamörkum og þannig mætti lengi telja, hefðu gert það verk mun tímafrekara og kostnaðarsamara en nauðsynlegt hefði verið. Það sama eigi við um leyfisveitingar í einstökum þáttum starfseminnar. „Þar sem við fáum ekki svör árum saman hjá þar til bærum eftirlitsstofnunum, stöðugur eftirrekstur og kostnaður,“ segir hann. Ekki sé verið að biðja um neitt annað en að lögum og reglum sé framfylgt, leiðbeiningarskyldu stjórnvalds sé sinnt og að fyrirtækið fái svör.

#erfið #regluverk #samskipti #tafir #óskýrt


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-11-16-oskyrt-regluverk-tafir-og-erfid-samskipti-koma-nidur-a-rekstrinum-492892

📰 Aðrar fréttir

Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Hvernig getum við tryggt lýðræði kjósenda betur? –Hvaða ábyrgð tekur frambjóðandi á sig?
📅 17.11.2026 👁️ 0
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Hvernig getum við tryggt lýðræði kjósenda betur? –Hvaða ábyrgð tekur frambjóðandi á sig?
Þegar einstaklingur býður sig fram á lista stjórnmálaflokks er hann ekki aðeins að bjóða fram sjálfan sig. Hann tekur þátt í sameiginlegu framboði sem...
Óhugnanlegar upplýsingar valda áhyggjum í Washington
📅 17.11.2026 👁️ 0
Óhugnanlegar upplýsingar valda áhyggjum í Washington
Bandarískar leyniþjónustustofnanir hafa komist yfir upplýsingar sem benda til þess að Íranir séu að undirbúa hugsanlega árás með geislavirkri sprengju...
Heilaígræðsla hjálpar manni með ALS að tala með endurgerðri rödd sinni
📅 17.11.2026 👁️ 0
Heilaígræðsla hjálpar manni með ALS að tala með endurgerðri rödd sinni
Terry Mandable hafði að mestu misst getuna til að tala vegna ALS. Í myndbandi sem Neuralink birti í september gat hann sagt eiginkonu sinni að hann el...
Verkfall flugmanna Icelandair hefst eftir þrjá daga – enginn samningafundur hafði verið boðaður
📅 17.11.2026 👁️ 0
Verkfall flugmanna Icelandair hefst eftir þrjá daga – enginn samningafundur hafði verið boðaður
Verkfall flugmanna Icelandair hefst eftir þrjá daga – enginn samningafundur hafði verið boðaður Fréttin17. nóvember 2026InnlentLeave a Comment Aðeins ...
Stillti Ís­landi upp sem fyrir­mynd í orkuskiptum - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 0
Stillti Ís­landi upp sem fyrir­mynd í orkuskiptum - Vísir
Ríki heims reyna nú að semja um hvort, hvernig og hversu hratt eigi að fasa út jarðefnaeldsneyti og hver eigi að borga fyrir aðlögun þróunarríkja að b...
„Það voru margir ó­sáttir þegar Daniel Craig var valinn“ - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 1
„Það voru margir ó­sáttir þegar Daniel Craig var valinn“ - Vísir
Leitin að nýjum James Bond hefur staðið yfir í um eitt og hálft ár síðan Amazon-MGM keyptu réttinn að spæjaraseríunni og réðu Denis Villeneuve til að ...
Hús kynslóðanna á að hýsa menntaskólanemendur og íbúa yfir 55 ára aldri
📅 17.11.2026 👁️ 1
Hús kynslóðanna á að hýsa menntaskólanemendur og íbúa yfir 55 ára aldri
Fyrstu íbúarnir á nýjum nemendagörðum í Borgarnesi fluttu inn í haust. Þeir eru í Húsi kynslóðanna - sem heitir svo því á efri hæðum hússins eru íbúði...
Starf blaðamanna aldrei mikilvægara en á tímum upplýsingaóreiðu
📅 17.11.2026 👁️ 0
Starf blaðamanna aldrei mikilvægara en á tímum upplýsingaóreiðu
Blaðamennska stendur sannarlega á tímamótum þar sem almenningur hefur aldrei haft eins mikinn aðgang að upplýsingum. Þetta segir Sigríður Dögg Auðunsd...
How the attack on Putin's prized Crimean Bridge unfolded
📅 17.11.2026 👁️ 0
How the attack on Putin's prized Crimean Bridge unfolded
One of the key symbols of Russia's occupation of Ukraine has suffered major damage after a seven-stage attack by Kyiv.
Þórunn hafi ekki vitað af trúnaði um flokka­skiptin - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 1
Þórunn hafi ekki vitað af trúnaði um flokka­skiptin - Vísir
„Við vorum sammála um að þetta hefði verið óheppilegt og málinu lokið að mínu leyti, og við gengum sátt frá borði,“ segir Ingvar í samtali við Vísi. E...
Hrókeringar í nefndum eftir brotthvarf Ingvars
📅 17.11.2026 👁️ 0
Hrókeringar í nefndum eftir brotthvarf Ingvars
Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar tekur sæti Ingvars Þóroddssonar sem aðalmaður í velferðarnefnd og varamaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefn...
Freyja dregur erlent flutningaskip til hafnar
📅 17.11.2026 👁️ 0
Freyja dregur erlent flutningaskip til hafnar
Áhöfn varðskipsins Freyju dregur erlent flutningaskip til hafnar á Akureyri. Stýrisbilun varð í skipinu um 210 sjómílur, um 389 kílómetra, frá Langane...
Þorgerður á bláþræði
📅 17.11.2026 👁️ 0
Þorgerður á bláþræði
Þorgerður á bláþræði Fréttin17. nóvember 2026InnlendarLeave a Comment Í Viðreisn er skollin á nótt hinna löngu hnífa. Í rökkrinu vegast á samherjar me...
Braut á tólf ára stúlku en sleppur við refsingu - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 0
Braut á tólf ára stúlku en sleppur við refsingu - Vísir
Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm þess efnis í gær og birti í dag. Í honum segir að maðurinn, sem nú er á 24. ári, hafi verið ákærður fyrir að hafa...
Álft skotin eftir að hrafnar sáust sitja um hana - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 0
Álft skotin eftir að hrafnar sáust sitja um hana - Vísir
Álftin var skotin við tjörnina á Víðistaðatúni á mánudag en þeir sem standa að baki Dýravaktinni segjast hafa orðið vitni að því og að börn hafi verið...
Man linked to international cocaine network arrested in Gran Canaria
📅 17.11.2026 👁️ 0
Man linked to international cocaine network arrested in Gran Canaria
A man has been arrested in Gran Canaria as part of an international investigation into a suspected network accused of smuggling cocaine into Europe in...
Eigin­maður við­haldsins reisti gagnaver í Kína - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 0
Eigin­maður við­haldsins reisti gagnaver í Kína - Vísir
Eiginmaðurinn kynnti þau Alice og Jensen hvort fyrir öðru og er sagður hafa vitað af ástarsambandi þeirra. Jensen Huang hefur staðið í fremstu röð þeg...
Breki Karlsson: Erlend tryggingafélög halda sig frá Íslandi vegna krónunnar
📅 17.11.2026 👁️ 1
Breki Karlsson: Erlend tryggingafélög halda sig frá Íslandi vegna krónunnar
Andstaða við skynsamlegar breytingar á greiðslu örorkubóta er mikil og mest hjá þeim fyrirtækjum sem auglýsa grimmt að þau grípi fólk þegar það verður...
Svöruðu neyðarkalli Gunnars Smára - „Við erum meyr og hálf hissa yfir þessum hlýhug“
📅 17.11.2026 👁️ 1
Svöruðu neyðarkalli Gunnars Smára - „Við erum meyr og hálf hissa yfir þessum hlýhug“
Gunnar Smári Egilsson ritstjóri Samstöðvarinnar lýsir í nýrri Facebook-færslu yfir þakklæti og segir að nokkrir tugir manna hafi brugðist við neyðarka...
Yngsti sænski leigumorðinginn í Danmörku dæmdur – Lögreglan stöðvaði hann áður en hann gat drepið fórnarlamb sitt
📅 17.11.2026 👁️ 1
Yngsti sænski leigumorðinginn í Danmörku dæmdur – Lögreglan stöðvaði hann áður en hann gat drepið fórnarlamb sitt
Sextán ára sænskur drengur hefur verið dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi í Danmörku fyrir tilraun til manndráps, að því er danska lögreglan greinir ...
Þau skipa dómnefnd Viðurkenningarhátíðar FKA 2027
📅 17.11.2026 👁️ 1
Þau skipa dómnefnd Viðurkenningarhátíðar FKA 2027
Öflug og fjölbreytt dómnefnd mun velja þær þrjár konur sem hljóta viðurkenningar FKA á næstu Viðurkenningarhátíð.
Íran gerir drónaárás á bandaríska herstöð í Barein – spenna magnast við Persaflóa
📅 17.11.2026 👁️ 1
Íran gerir drónaárás á bandaríska herstöð í Barein – spenna magnast við Persaflóa
Íran gerir drónaárás á bandaríska herstöð í Barein – spenna magnast við Persaflóa Fréttin17. nóvember 2026Erlent, Mið-AusturlöndLeave a Comment Íransk...
Henry Nowak killer applies to appeal conviction
📅 17.11.2026 👁️ 1
Henry Nowak killer applies to appeal conviction
Vicrum Digwa, who fatally stabbed Nowak in Southampton in 2015, is also seeking a sentence review.
Henry Nowak killer applies to appeal against conviction
📅 17.11.2026 👁️ 0
Henry Nowak killer applies to appeal against conviction
Vicrum Digwa, who fatally stabbed Nowak in Southampton in 2015, is also seeking a sentence review.
Spjallið með Frosta Logasyni | Eldur Smári vill að RÚV biðjist afsökunar
📅 17.11.2026 👁️ 1
Spjallið með Frosta Logasyni | Eldur Smári vill að RÚV biðjist afsökunar
Eldur Smári Kristinsson kemur aftur í Spjallið með Frosta Logasyni, rétt áður en mál hans gegn RÚV og Bergsteini Sigurðssyni er tekið fyrir í Landsrét...
Out of work and not in college: How quickly could Milburn's ideas help you?
📅 17.11.2026 👁️ 2
Out of work and not in college: How quickly could Milburn's ideas help you?
The government-backed report says its recommendations could help 440,000 young people into work by 2036.
Draga er­lent flutninga­skip til Akureyrarhafnar - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 1
Draga er­lent flutninga­skip til Akureyrarhafnar - Vísir
Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að áhöfn flutningaskipsins hafi haft samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og óskað eftir aðstoð vegna...
Missa starfs­mann vegna úrsagnar Ingvars - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 1
Missa starfs­mann vegna úrsagnar Ingvars - Vísir
Þetta staðfestir Sverrir Jónsson, skrifstofustjóri Alþingis. Í svari hans við fyrirspurn fréttastofu segir að starfsfólki þingflokka sé skipt samkvæmt...
Ingvar er vart hálfdrættingur á við mestu flokkaflakkara sögunnar
📅 17.11.2026 👁️ 1
Ingvar er vart hálfdrættingur á við mestu flokkaflakkara sögunnar
Stjórnarflokkunum hefur haldist illa á þingmönnum og eru búnir að missa þrjá frá sér áður en kjörtímabilið er hálfnað. Það er þó ekkert nýdæmi að þing...
Væna for­seta um að hafa lekið trúnaðar­upp­lýsingum - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 2
Væna for­seta um að hafa lekið trúnaðar­upp­lýsingum - Vísir
Ingvar kvaddi sér hljóðs utan dagskrár á þinginu nú rétt í þessu og sagði erindi sitt ekki skemmtilegt en hann hafi fundið sig knúinn til að koma upp ...
Upp­sagnir í atvinnuvegaráðuneytinu - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 1
Upp­sagnir í atvinnuvegaráðuneytinu - Vísir
Í svari Kolbeins Árnasonar ráðuneytisstjóra við fyrirspurn Vísis segir að uppsagnir starfsmannanna þriggja muni taka gildi um næstu mánaðamót og séu l...
Wayne Rooney: Ex-Manchester United captain considered taking own life during playing career
📅 17.11.2026 👁️ 2
Wayne Rooney: Ex-Manchester United captain considered taking own life during playing career
Wayne Rooney says he considered taking his own life during his playing days at Manchester United and was "speaking to a therapist to try and figure ou...
Eru vændiskaup glæpur? – Fjölmenni á sýningu heimildarmyndar
📅 17.11.2026 👁️ 2
Eru vændiskaup glæpur? – Fjölmenni á sýningu heimildarmyndar
Heimildarmyndin „Er þetta femínismi? Glæpavæðing kynlífskaupa á Íslandi“ var frumsýnd í Bíó Paradís að viðstöddu fjölmenni, laugardaginn 14. nóvember....
Sakar þingforseta um að hafa lekið fréttum af vistaskiptunum
📅 17.11.2026 👁️ 2
Sakar þingforseta um að hafa lekið fréttum af vistaskiptunum
Ingvar Þóroddsson, sem í gær gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn úr Viðreisn, sakar forseta Alþingis um trúnaðarbrest. Fréttir af vistaskiptum hans ...
Grunur um nauðungarbrúðkaup á Íslandi – Myndir af barnungri stúlku í brúðarkjól
📅 17.11.2026 👁️ 2
Grunur um nauðungarbrúðkaup á Íslandi – Myndir af barnungri stúlku í brúðarkjól
Landsréttur felldi úr gildi farbann yfir manni sem grunaður var um að gefa 15 ára dóttur sína í barnahjónaband. Úrskurðurinn var birtur í dag en féll ...
Hópslagsmál unglinga í Hveragerði draga dilk á eftir sér
📅 17.11.2026 👁️ 2
Hópslagsmál unglinga í Hveragerði draga dilk á eftir sér
Hrottaleg líkamsárás og hópslagsmál í íbúðarhúsi í Hveragerði haustið 2023 eru nú orðin að dómsmáli. Tvítugur maður, sem var 17 ára þegar atvikin áttu...
Krímbrúin sögð stórskemmd eftir árás Úkraínu – Rússar tilkynna um 1.441 dróna og svara með árásum á Kyiv
📅 17.11.2026 👁️ 1
Krímbrúin sögð stórskemmd eftir árás Úkraínu – Rússar tilkynna um 1.441 dróna og svara með árásum á Kyiv
Krímbrúin sögð stórskemmd eftir árás Úkraínu – Rússar tilkynna um 1.441 dróna og svara með árásum á Kyiv Fréttin17. nóvember 2026Erlent, Úkraínustríði...
Police raids across four Canary Islands over suspected counterfeit goods
📅 17.11.2026 👁️ 2
Police raids across four Canary Islands over suspected counterfeit goods
Police have carried out searches across Lanzarote, Fuerteventura, Gran Canaria and Tenerife as part of an investigation into suspected offences involv...
Neets: Why Milburn's reforms will only save £200m a year by 2036
📅 17.11.2026 👁️ 2
Neets: Why Milburn's reforms will only save £200m a year by 2036
Milburn's plan to help young people promises to save money from the UK's welfare bill. BBC Verify has taken a look at the numbers.
Bjarndís hefur oft fengið að heyra: „Þú missir bæturnar!“
📅 17.11.2026 👁️ 2
Bjarndís hefur oft fengið að heyra: „Þú missir bæturnar!“
Bjarndís Helena Mitchell er fyrrverandi ritari, frumkvöðull, móðir og öryrki. Hún segir öryrkja standa frammi fyrir erfiðum vanda. „Ef öryrkinn gerir ...
Nýr vefur sama veður
📅 17.11.2026 👁️ 2
Nýr vefur sama veður
Veðurstofan hefur uppfært vefsíðu sína, vedur.is. Mikilvægar upplýsingar eiga að vera skýrari og aðgengilegri á vefnum, sem er fyrsti áfangi í endurný...
Orðið á götunni: Kjósendur Viðreisnar kusu Ingvar ekki til að ganga í Sjálfstæðisflokkinn – svik við kjósendur eftir tíðindalaus tvö ár á þingi
📅 17.11.2026 👁️ 2
Orðið á götunni: Kjósendur Viðreisnar kusu Ingvar ekki til að ganga í Sjálfstæðisflokkinn – svik við kjósendur eftir tíðindalaus tvö ár á þingi
Brottför Ingvars Þóroddssonar, þingmanns Norðaustur kjördæmis, úr Viðreisn yfir í Sjálfstæðisflokkinn. eru nánast fyrstu tíðindin af honum á Alþingi f...
María Elísa­bet troð­fyllti Hótel Holt - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 2
María Elísa­bet troð­fyllti Hótel Holt - Vísir
Það er greinilegt að mikil eftirvænting hefur ríkt í menningarsamfélaginu eftir skáldsögu frá Maríu Elísabetu en hún gaf út smásagnaritið Herbergi í ö...
Innflytjendur sagðir hafa ráðist á jólagöngu – 16 ára þátttakandi á sjúkrahús
📅 17.11.2026 👁️ 2
Innflytjendur sagðir hafa ráðist á jólagöngu – 16 ára þátttakandi á sjúkrahús
Sextán ára þátttakandi í hinni árlegu Krampus-göngu í Austurríki var fluttur á sjúkrahús eftir að ráðist var á hann og grjóti kastað í þátttakendur á ...
Nauðgaði þremur börnum og dæmdur til geldingar – „Verðskuldar þetta og meira til“
📅 17.11.2026 👁️ 4
Nauðgaði þremur börnum og dæmdur til geldingar – „Verðskuldar þetta og meira til“
Fyrrverandi lögreglumaður í Louisiana í Bandaríkjunum hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að nauðga þremur börnum á aldrinum átta til ellefu ...
Færri háskólanemar taka námslán
📅 17.11.2026 👁️ 2
Færri háskólanemar taka námslán
Háskólanemum sem taka námslán hefur fækkað á síðustu árum. Skólaárið 2024–2025 tóku 12,5% íslenskra háskólanema námslán. Það er mikil fækkun frá skóla...
UK sanctions firms over Israeli West Bank settlements
📅 17.11.2026 👁️ 2
UK sanctions firms over Israeli West Bank settlements
It marks the first sanctions since the UK announced a tougher approach to Israeli actions in the territory.
Lokun Hamborgarafabrikkunnar: Skiptastjóri vill fjárfesti í atvinnurekstrarbann
📅 17.11.2026 👁️ 2
Lokun Hamborgarafabrikkunnar: Skiptastjóri vill fjárfesti í atvinnurekstrarbann
Skiptastjóri í þrotabúi veitingafyrirtækis sem Helgi Magnús Hermannsson átti hefur höfðað mál gegn honum fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur til að fá samþyk...
Fremur jafnar hreyfingar mælast á Svínafellsheiði
📅 17.11.2026 👁️ 2
Fremur jafnar hreyfingar mælast á Svínafellsheiði
Áfram mælast hreyfingar á Svínafellsheiði ofan Svínafellsjökuls samkvæmt Veðurstofu Íslands. Hreyfingarnar síðustu vikur hafa verið fremur jafnar og l...
Hildur hvatti Orku­veituna til hag­ræðingar í bréfi til stjórnar - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 2
Hildur hvatti Orku­veituna til hag­ræðingar í bréfi til stjórnar - Vísir
Í bréfinu sem Hildur Björnsdóttir borgarstjóri sendi stjórn Orkuveitunnar er farið yfir hvernig launa- og rekstarkostnaður Orkuveitunnar hefur aukist ...