Landsréttur felldi úr gildi farbann yfir manni sem grunaður var um að gefa 15 ára dóttur sína í barnahjónaband. Úrskurðurinn var birtur í dag en féll þann 30. janúar 2025. Ekki liggur fyrir ástæða þess að birting á úrskurðinum dróst svona lengi en geta má sér til að málið þyki viðkvæmt. Landsréttur taldi lögreglu ekki hafa sýnt fram á með fullnægjandi hætti að rökstuddur grunur væri um refsivert brot og því væru ekki lagaskilyrði fyrir farbanninu.
Grunur um nauðungarbrúðkaup á Íslandi – Myndir af barnungri stúlku í brúðarkjól