Í svari Kolbeins Árnasonar ráðuneytisstjóra við fyrirspurn Vísis segir að uppsagnir starfsmannanna þriggja muni taka gildi um næstu mánaðamót og séu liður í hagræðingu í rekstri ráðuneytisins vegna aðhaldskröfu.
Þá verði ekki ráðið í stöður tveggja starfsmanna sem létu nýverið af störfum. Með þessum breytingum hafi stöðugildum hjá ráðuneytinu verið fækkað um fimm. Ekki sé gert ráð fyrir frekari fækkun starfa að svo stöddu.