Álftin var skotin við tjörnina á Víðistaðatúni á mánudag en þeir sem standa að baki Dýravaktinni segjast hafa orðið vitni að því og að börn hafi verið á svæðinu.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, samskiptastjóri Hafnarfjarðarbæjar, segir í svari við fyrirspurn Vísis að starfsmenn bæjarins hafi fylgst með álftinni í um tíu daga. Margar tilkynningar höfðu borist bænum vegna álftarinnar og höfðu margir áhyggjur af velferð hennar.
„Þegar sást til hrafna sitja um fuglinn var ákveðið að grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir frekari þjáningar,“ segir Gunnhildur.
Ákvörðunin um að aflífa álftina var tekin í samráði við einstakling með mikla þekkingu á fuglalífi og var lögreglu gert viðvart áður en gripið var til þess úrræðis. Að því loknu var álftin send til rannsóknar á Keldum og er vonast til að niðurstöðurnar varpi ljósi á hvað amaði að henni.
Guðmundur Fylkisson lögreglumaður segir í samtali við Vísi að margar tilkynningar hafi borist vegna álftarinnar. „Hún hafði verið þarna í einhverjar vikur ein. Fólk hélt að hún væri frosin föst," segir Guðmundur.
Álftin hafi hins vegar staðið upp og étið þegar fólk fylgdist með henni. Hann segir álftir geta leitað í einveru þegar eitthvað amar að þeim og nefnir álft sem hélt sig eina við Hvaleyrarvatn í sumar og fannst síðar dauð.