„Við vorum sammála um að þetta hefði verið óheppilegt og málinu lokið að mínu leyti, og við gengum sátt frá borði,“ segir Ingvar í samtali við Vísi.
Eins og þekkt er orðið sagði Ingvar sig úr Viðreisn í gær og gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Hann greindi frá því á Alþingi í dag að hann hefði greint Þórunni frá ákvörðun sinni í gærmorgun og að það hefði spurst frekar fljótt út í kjölfarið. Þar á meðal hafi fregnir borist til fólks sem hann hafði ætlað að ræða við sjálfur til að greina frá ákvörðun sinni.
Ólafur Adolfsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, tók undir með Ingvari í þingsal og kallaði eftir skýringum frá Þórunni Sveinbjarnardóttur forseta Alþingis og Pawel Bartoszek, þingflokksformanni Viðreisnar. Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vildi að málið yrði tekið fyrir í forsætisnefnd.
„Það sem ég er fyrst og fremst miður mín með er að ég hafi ekki fengið tækifæri til að hringja í ákveðna aðila sjálfur,“ segir Ingvar.
Hann gerði sér grein fyrir því að margir yrðu ekki sáttir við ákvörðunina.
„Það bætti ekki úr skák að það þurfti að heyra þetta frá öðrum en mér. Þess vegna fannst mér ég þurfa að tjá mig um þetta í ræðupúlti á Alþingi svo fólk vissi að þetta átti ekki að æxlast svona og ég var miður mín yfir því.“