Þetta staðfestir Sverrir Jónsson, skrifstofustjóri Alþingis. Í svari hans við fyrirspurn fréttastofu segir að starfsfólki þingflokka sé skipt samkvæmt d'Hondt-reglunni. Reglan er sú sem er notuð við úthlutun þingsæta hérlendis og gengur í einföldu máli út á að deila heiltölunum 1, 2, 3 og svo framvegis í þingsætatölu hvers flokks þar til sætunum hefur verið úthlutað.
Þegar reglan er notuð við úthlutun starfsmanna eru ráðherrar, forseti þingsins og formenn sem eiga sæti á þingi dregnir frá. Vegna þessa er til dæmis Sjálfstæðisflokkurinn með fleiri starfsmenn heldur en Samfylkingin þrátt fyrir að vera með jafn marga þingmenn.
Ingvar sagði sig úr Viðreisn í gær og þar sem fjöldi þingmanna í flokknum breytist þarf Viðreisn einnig að segja skilið við einn starfsmann þingflokksins. Sömuleiðis fær Sjálfstæðisflokkurinn að ráða einn starfsmann til viðbótar.
Þar með verða starfsmenn þingflokks Viðreisnar þrír og þingflokks Sjálfstæðisflokksins sjö.
„Já, það er rétt að Viðreisn mun þurfa að fækka í sínu góða starfsliði vegna brotthvarfs Ingvars Þóroddssonar úr þingflokki Viðreisnar. Það er mjög þungbært að þurfa að taka slíka ákvörðun enda úr einvalaliði að ráða,“ segir Pawel Bartoszek, þingflokksformaður Viðreisnar, í samtali við fréttastofu.
Svanborg Sigmarsdóttir er framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar á meðan Sigurjón Njarðarson er í leyfi. Þá eru Pétur Björgvin Sveinsson, Ingunn Rós Kristjánsdóttir og Emilía Björt Írisardóttir Bachmann titluð starfsmenn flokksins auk Katrínar Sigríðar J. Steingrímsdóttur en hún er skráð í leyfi.