Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að áhöfn flutningaskipsins hafi haft samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og óskað eftir aðstoð vegna stýrisvandræða. Í kjölfarið hafi áhöfn varðskipsins Freyju verið kölluð út og varðskipið haldið af stað frá Siglufirði í gærmorgun.
Samkvæmt tilkynningunni kom Freyja að flutningaskipinu um klukkan fjögur í nótt.
„Vel gekk að skjóta skotlínu yfir í flutningaskipið og skömmu síðar lauk áhöfn Freyju við að koma dráttartaug á milli skipanna. Ferðin hefur gengið vel og gert er ráð fyrir að Freyja komi með flutningaskipið til hafnar á Akureyri annað kvöld,“ segir að lokum.