Áfram mælast hreyfingar á Svínafellsheiði ofan Svínafellsjökuls samkvæmt Veðurstofu Íslands. Hreyfingarnar síðustu vikur hafa verið fremur jafnar og lítil hætta er talin í byggð.
Í síðustu viku fór starfsfólk Veðurstofu í vettvangsferð. Þau fóru yfir mælibúnaðinn sem hefur vaktað hreyfingar í hlíðinni síðan 2018, mynduðu svæðið með dróna og mældu fastpunkta.
Þær hreyfingar sem mælst hafa í haust eru fyrstu marktæku hreyfingarnar frá því vöktunarkerfið var sett upp.
Veðurstofan spáir ekki fyrir um hvernig hreyfingarnar þróast á næstunni. Þær gætu fjarað út eða haldið áfram og leitt til skriðufalla.
Veðurstofan telur litla hættu í byggð að svo stöddu.
Ástæðan fyrir að Svínafellsheiði er vöktuð er sú að það eru sprungur í norðanverðri heiðinni fyrir ofan jökulinn.
Í hættumati Veðurstofunnar frá 2025 kemur fram að hætta er á stóru berghlaupi niður á jökulinn. Ein sviðsmyndin er að berghlaup falli á jökulinn og valdi jökulhlaupi úr lónum við jökuljaðarinn. Líklegast er að berghlaupið stöðvist á jöklinum án þess að ógna byggðinni neðan hans.