Þorgerður á bláþræði

Í Viðreisn er skollin á nótt hinna löngu hnífa. Í rökkrinu vegast á samherjar með kutana á lofti. Tvennar útgöngudyr glittir í, merktar XB og XD. Þeir einir eiga von um útgönguleið sem veigur er í fyrir aðra flokka.
Ábekingar Viðreisnar standa frammi fyrir tveim kostum. Liðhlaup eða drottningarfórn.
Tapist fleiri þingmenn er örvænt um líf ríkisstjórnarinnar. Þorgerður Katrín formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra er tilbúin að veðja á kosningar. Í viðtengdu viðtali er hún í kosningaham, segist ætla að gera bókun 35 að höfuðmál í baráttunni. EES-samningurinn sé mikilvægasti milliríkjasamningur sem Ísland hefur gert, segir formaður æ laustengdari við veruleikann. Það eitt vantaði að utanríkisráherra bætti við: á eftir Gamla sáttmála.
Pólitískt líf Þorgerðar Katrínar er ekki lengur í hennar eigin höndum. Eftir 29. ágúst er vegferð formanns Viðreisnar þyrnum stráð píslarganga. Bókun 35 á þingi er fíaskó. Stjórnarandstaðan er sameinuð gegn málinu. Utanríkisráðherra hagnast á að Ísland tapi dómsmálinu sem ESA höfðar fyrir EFTA-dómstólnum. Til að bjarga trúverðugleika ríkisstjórnarinnar verður Kristrún forsætisráðherra að taka málsvörn Íslands úr höndum utanríkisráðherra. Ræðan á allsherjarþingi SÞ í New York vakti kátínu meðal klerkanna í Íran. Jón Gnarr sagði sig úr þingflokknum. Daði Már varaformaður og fjármálaráðherra er pólitískt meira dauður en lifandi vegna Landsvirkjunarmálsins. Í gær kvaddi Ingvar Þóroddsson þingmaður Viðreisn og gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Allt gerist þetta í lóðbeinu framhaldi af óuppgerðu tapi í þjóðaratkvæðagreiðslunni fyrir hálfum þriðja mánuði.
Þorgerður Katrín tók sér frí í síðustu viku, líkast til að kanna atvinnumöguleika í útlöndum. Útganga úr ríkisstjórn í feitt embætti erlendis yrði i takt við Kaupþingsuppgjörið um árið. Ráðherra strandar skútunni, hverfur frá borði og sendir reikninginn annað.
Er sneiðist um meirihlutann á alþingi fær hver og einn stjórnarþingmaður meira vægi, getur gert kröfur um að sín sjónarmið fái vægi, - nú eða heimtað bitling. Tæpur meirihluti gerir stjórnarsamstarfið þyngra og eykur taugaveiklun sem ekki er lítil fyrir. Vantraust innan Viðreisnar smitar frá sér. Enginn vill sitja uppi með Svarta-Pétur við stjórnarslit.
Viðreisn er dragbítur á stjórnarsamstarfið. Ólíkt Samfylkingu, sem búast má við að haldi velli sem stjórnmálaflokkur eftir næstu þingkosningar ríkir meiri óvissa um Viðreisn. Flokkurinn gæti sem hægast þurrkast út af þingi, líkt og Píratar og Vinstri grænir. Óöldin í flokki utanríkisráðherra magnast er þingmenn og ráðherrar óttast um framhaldslíf sitt í stjórnmálum.
Jón Gnarr yfirgaf þingflokk Viðreisnar í haust með þeim orðum að klíkumyndun væri alvarleg meinsemd í þingflokknum. Þorgerður Katrín er með hirð í kringum sig; Daða Má, Hönnu Katrínu, Sigmar og Maríu Rut. Ekkert þeirra á tækifæri til frama í öðrum stjórnmálaflokkum. Öðru máli gegnir um Þorbjörgu Sigríði dómsmálaráðherra. Hún á fjölskyldurætur í Framsókn og yrði eflaust velkomin í Sjálfstæðisflokkinn. Þá eru eftir fjórir þingmenn: Pawel, Grímur, Sandra og Eiríkur Björn. Hver og einn þingmannanna gæti hugsað sér til hreyfings, standi hugurinn til frekari stjórnmálaþátttöku.
Sú hætta vofir yfir Viðreisn að Kristrún forsætisráðherra telji hag sínum og Samfylkingar betur borgið með að stjórna atburðarásinni fremur en að eiga allt undir úrslitum innanflokksmeina samstarfsflokksins. Eftir samþykkt fjárlaga í desember eru vorkosningar valkostur forsætisráðherra. Með sitjandi formann er Viðreisn ekki í stakk búin að takast á við kosningabaráttu.
Líkt og tíðkast hjá smáflokkum með stutta sögu er fremur einfalt í Viðreisn að steypa formanni af stóli njóti hann ekki lengur trausts. Stofnanda og fyrsta formanni Viðreisnar, Benedikt Jóhannessyni, varð á að mæla óvarlega um lítilfjörlegar ástæður stjórnarslita ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartar framtíðar. Ráðgjafaráð Viðreisnar ákvað að skipta út Benedikt. Níu ár eru frá pólitískri aftöku fyrsta formanns Viðreisnar. Þorgerður Katrín naut góðs af. Benedikt missti út úr sér ein óvarleg ummæli og var knúinn til afsagnar. Syndaregistur sitjandi formanns er töluvert lengra.
Klíkan í kringum Þorgerði Katrínu heldur formanninum enn á floti. Flýtur á meðan ekki sekkur.