Hrottaleg líkamsárás og hópslagsmál í íbúðarhúsi í Hveragerði haustið 2023 eru nú orðin að dómsmáli. Tvítugur maður, sem var 17 ára þegar atvikin áttu sér stað, hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á hendur jafnaldra sínum. Í ákæru héraðssaksóknara er hann sagður hafa slegið brotaþola fyrirvaralaust í höfuðið, sem leiddi til þess að átök brutust út með aðkomu fleiri manna, sem enduðu með því að brotaþoli féll í gólfið en ákærði sparkaði og/eða stappaði á höfði hans þar sem hann lá í gólfinu.
Hópslagsmál unglinga í Hveragerði draga dilk á eftir sér