Þetta segir Ingvar Þóroddsson, þingmaður sem gekk í dag til liðs við Sjálfstæðisflokkinn eftir að hafa verið kjörinn á þing fyrir Viðreisn árið 2024. Ingvar er þar með þriðji þingmaðurinn til að segja skilið við þingflokkinn. Jón Gnarr sagði sig úr Viðreisn á dögunum og þá sagði Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi barnamálaráðherra, sig úr Flokki fólksins í byrjun árs.
Hér fyrir neðan má sjá viðtalið við Ingvar í heild sinni.
Hann segir aukna skattheimtu og litlum fyrirsjáanleika með litlu samráði við atvinnulífið hafa gert útslagið. Hann segir málið koma illa niður á Norðausturkjördæmi sem er kjördæmi Ingvars.
„Flokkurinn bauð sig fram með fá loforð en eitt af þeim loforðum sem ég talaði fyrir var að við myndum ná stjórn á efnahagsmálunum án þess að hækka skatta. Síðan var vissulega ráðist í það að hækka skatta en oft réttlætt með þeim hætti að það þyrfti að ráðast í innviðauppbyggingu úti á landi,“ segir hann og tekur fram að kjördæmi hans hafi verið gjörsamlega út undan í þeim efnum og á væntanlega meðal annars við breytingar á forgangsröðun í jarðgangagerð, þar sem Fjarðarheiðargöng voru færð neðar í forgangsröðuninni.
„Ég er að fylgja minni sannfæringu eins og stjórnarskráin segir mér að gera. Þetta snýst um málefnalegan ágreining.“
Hvenær hófust samtöl þín og Sjálfstæðisflokksins? Varst það þú sem óskaðir eftir því að ganga til liðs við flokkinn?
„Ég verð að viðurkenna að ég man ekki alveg hver braut ísinn. Ég átti fyrst samtöl við forystu Sjálfstæðisflokksins í þeirri viku sem Jón Gnarr yfirgaf þingflokkinn. Þá var ég kominn mjög langt með að taka þessa ákvörðun sjálfur. Ég lofaði þó forystu Viðreisnar að taka mér lengri tíma í að hugsa málið,“ segir hann og tekur fram að hann hafi hugsað málið síðan en alltaf komist að sömu niðurstöðu.
Hann segir forystu flokksins hafa lagt sig fram við að reyna tala hann af ákvörðuninni.
Fjarvera þín úr fjárlaganefnd tengist þessu væntanlega? Þú gast ekki staðið við áform ríkisstjórnarinnar þegar það kemur að ríkisútgjöldum?
„Ég var skýr með það í haust að ég get ekki stutt fjárlagafrumvarpið“
Hann segir ákvörðun sína ekki byggjast á rökum um klíkustjórnun og vondan anda innan þingflokksins líkt og Jón Gnarr vísaði til.
„Ég bara get ekki stutt þetta lengur. Sumt af því sem Jón Gnarr sagði get ég verið sammála. Kannski sérstaklega er varðar vinnubrögð. Ég tek dæmi um það í minni yfirlýsingu að mér var bara tilkynnt það kvöldið áður en kynntar voru breytingar á loftbrú að þetta stæði til. Þetta var ekki kynnt á þingflokksfundi. Það eru svona vinnubrögð sem ég held að Jón hafi verið óánægður með og ég get tekið undir.“
Þú ert beinlínis að segja að Viðreisn hafi svikið öll sín loforð gagnvart kjósendum?
„Mér hefur þótt ég vera að svíkja loforð sem ég gaf mínum kjósendum í síðustu kosningum og ég er ekki reiðubúinn til að gera það lengur.“
Hann segir um erfiðustu ákvörðun lífs síns að ræða. Spurður hvort það séu fleiri innan Viðreisnar sömu skoðunar og hann segir Ingvar:
„Ég þori ekki að fullyrða neitt um það.“
Það hafi ekki komið til viðræðu hvert hlutverk hans verður innan flokksins. Hann segir ákvörðun sína ekki hafa neitt með þjóðaratkvæðagreiðsluna um áframhaldandi aðildarviðræður við ESB í sumar. Ingvar hafi greitt atkvæði með já-inu.
Honum þyki enn mjög vænt um Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, formann Viðreisnar.
„Mér finnst flokkurinn ekki vera að stjórna með þeim hætti sem hann talaði í aðdraganda síðustu kosninga. Ég get ekki stutt stefnu þar sem mér finnst ég vera að svíkja mína kjósendur.“
Hvernig brást Þorgerður Katrín við?
„Ég ætla ekki að fara í einhver smáatriði varðandi það en hún var að sjálfsögðu ekki sátt.“
Finnst þér hún hafa lagt mikið á sig til að halda þér í flokknum.
„Uuu.. Nei. Ég hefði ekkert viljað vera þingmaður í flokki sem ég er búinn að ákveða að ég eigi ekki heima í og haldi áfram bara af því að ég held formanni flokksins í einhverri spennitreyju. Ég var ekkert að biðja þau um hitt og þetta svo ég myndi halda áfram.“