Mál Elds Smára gegn RÚV tekið fyrir í Landsrétti

Aðalmeðferð í máli Elds Smára Kristinssonar gegn Ríkisútvarpinu og Bergsteini Sigurðssyni fréttamanni er fyrirhuguð í Landsrétti í dag klukkan 13. Hann áfrýjaði dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 3. nóvember 2025, þar sem RÚV og Bergsteinn voru sýknuð af kröfu hans um miskabætur.
Málið varðar ummæli í kosningaþættinum Forystusætið á RÚV 26. nóvember 2024, fáeinum dögum fyrir alþingiskosningar. Eldur Smári var þá í framboði fyrir Lýðræðisflokkinn. Hann segir að í þættinum hafi því ranglega verið haldið fram að lögregla hefði fjarlægt hann úr grunnskóla eftir að hann tók þar myndir af starfsfólki og börnum. Hann mótmælir einnig því hvernig fyrri ummæli hans um baráttufólk fyrir réttindum transfólks voru rakin í þættinum.
Telur leiðréttingu RÚV hafa gengið of skammt
Eldur Smári segir að honum hafi ekki verið gefinn kostur á að svara fullyrðingunum fyrir útsendingu. Að hans sögn birti RÚV leiðréttingu á vef sínum daginn eftir sem tók til hluta umfjöllunarinnar um skólaatvikið. Hann telur að RÚV hefði átt að leiðrétta ummælin og biðjast afsökunar í útsendingu fyrir kosningar.
Í yfirlýsingu sinni vísar Eldur Smári til 4. mgr. 3. gr. laga um Ríkisútvarpið, sem fjallar meðal annars um sanngirni og hlutlægni í dagskrárgerð. Hann telur að vinnubrögðin við þáttinn hafi ekki uppfyllt þær kröfur.
Eldur Smári tilkynnti í nóvember 2025 að hann hefði áfrýjað héraðsdómnum. Málið ber samkvæmt tilkynningu hans númerið 828/2025 í Landsrétti.
Eldur skrifaði um málið á Substack þar er einnig hægt að styðja hann í baráttunni og gerast áskrifandi.