Engin þjóð getur verið örugg til lengdar í heimi þar sem stríð fá að geisa. Hvað ætlum við að gera til að breyta því?Við búum á undraverðri en um leið afar lítilli jörð. Á nokkrum klukkustundum getum við ferðast milli heimsálfa og á örfáum sekúndum átt samskipti við fólk hvar sem er í heiminum.Við erum tengd með viðskiptum, tækni, þekkingu og sameiginlegum lífsskilyrðum. Samt hegðum við okkur stundum eins og hver þjóð búi í sínum eigin heimi og geti tryggt eigin framtíð án tillits til þess sem gerist annars staðar.
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – „Give Peace a Chance“ – Ábyrgðin er okkar allra