Sigurður Þór steig í fyrsta sinn á svið sem Toulouse-Lautrec í Moulin Rouge! á sunnudaginn. Björn Stefánsson hefur farið með hlutverkið í rúmlega hundrað sýningum frá því hún var frumsýnd á síðasta leikvetri en er á leið í tímabundið leyfi.
Sigurður Þór starfaði við Borgarleikhúsið um áraraðir og lék meðal annars í verkunum Billy Elliot, Kæru Jelena, Veislu og Emil í Kattholti. Hann var tilnefndur mörgum sinnum til Grímuverðlauna og hlaut þau sem leikari í aðalhlutverki fyrir Deleríum búbónis árið 2024.
Sigurður hætti í Borgarleikhúsinu eftir leikveturinn 2024 til að snúa sér að námi í talmeinafræði. Hann greindi frá þessum tímamótum í spurningakeppninni Kviss á Sýn á síðasta ári.
Sigurður hefur samhliða talmeinafræðináminu verið í íslensku útgáfunni af Taskmaster, ýmsum auglýsingum og fór með lítið hlutverk í sjónvarpsþáttunum Vigdísi á síðasta ári.