Dagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur í dag, á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar. Af því tilefni eru veitt verðlaun í nafni skáldsins fyrir störf í þágu íslensks máls. Athöfnin fer fram í Eddu, húsi íslenskunnar, klukkan þrjú.
Logi Einarsson menningarráðherra segir að stjórnvöld hafi alla tíð þurft að berjast fyrir íslenskunni þegar kemur að tækninýjungum. Ný tækni kalli á nýjar áskoranir.. Berjast þurfti fyrir því að tæknirisinn IBM framleiddi íslenskt lyklaborð svo dæmi sé tekið.
„Við þurftum að leggja mikið á, til að bjarga Þ á sínum tíma 1992, og síðan þurfti auðvitað ákall stjórnvalda til Microsoft í kringum aldamótin og svo náðist ágætis árangur í samtali við OpenAI.“
Logi birti í morgun skoðanagrein undir yfirskriftinni Sæl, Sigríður sem vísar til máltæknitóls Apple, Siri. Það trufli íslensk stjórnvöld að tæknirisinn Apple skuli draga lappirnar þegar kemur að því að innvinkla íslensku í sitt viðmót.
„Það sem gerir það eiginlega svona ekki síst slæmt er að Apple hefur að mörgu leyti verið í fararbroddi þegar kemur að alls kyns lausnum. Við viljum núna reyna að fá þau til þess að vera trú sinni inngildingarstefnu sem þau eru stolt af og mega vera það, með því að gefa íslensku fólki líka tækifæri til þess að nýta þessar lausnir.“
Almannarómur, sem vinnur með stjórnvöldum að máltæknilausnum, hafi sent fyrirtækinu öll þau máltæknigögn sem þurfi til. Það sé því ekki eftir neinu að bíða hjá Apple.
„Við ætlum að hefja svona herferð. Stjórnvöld og Almannarómur og fleiri fyrirtæki. Við ætlum að gera ákall til Apple sem við köllum tryggjumislensku.is. Fólk má gjarnan taka þátt í því.“