Þættirnir fara í sýningu á Prime 16. desember næstkomandi þar sem einn keppandi frá hverju landi í heiminum tekur þátt í hinum ýmsu þrautum. Sá keppandi sem stendur einn eftir vinnur fimm milljónir dollara, eða rúmlega 620 milljónir íslenskra króna.
James Stephen Donaldson, fæddur 1998, er maðurinn á bak við Mr. Beast en hann heldur uppi vinsælli Youtube-rás og er með milljónir fylgjenda á samfélagsmiðlum.
Hálfdán, sem er 23 ára gamall, staðfesti við blaðamann að hann væri að taka þátt og deildi stiklu úr þáttunum á Instagram-hringrás sinni í gær. Að öðru leyti vildi hann lítið tjá sig um þátttökuna enn sem stendur þar sem þættirnir verða ekki sýndir fyrr en eftir mánuð.
Hann og bróðir hans Matthías Davíð mynda hljómsveitina Væb sem hefur notið mikilla vinsælda, sérstaklega hjá yngstu kynslóðinni. Þeir tóku eftirminnilega þátt í Eurovision árið 2025 og höfnuðu 25. sæti í lokakeppninni.