Íris Erlingsdóttir skrifar:
Sumir af víðlesnustu pennum landsins skrifa daglega heilu dálkana um Þorgerði Katrínu og Kristrúnu Frostadóttur og hvert einasta orð sem þær láta frá sér fara. En þegar að því kemur að ræða píkuveldisvæðingu íslenskra stofnana og hvað hún hefur gert íslensku samfélagi eru þessir sömu pennar gjörsamlega bleklausir.
Jæja, herrar mínir. Þið hafið dálkana, lesendurna og orðaforðann. Hvað stendur í vegi fyrir því að þið takið þessa umræðu?
Í meira en hálfa öld hefur íslenska ríkið unnið markvisst að því að draga úr yfirburðum karla í opinberu lífi. Konur gegna nú æðstu embættum landsins og eru í miklum meirihluta í bæði opinberum stofnunum og einkafyrirtækjum. Við höfum heyrt ótal ræður um það hvernig yfirburðir karla mótuðu stofnanir á sínum tíma. Hvers vegna ætti sama spurning að vera óviðeigandi þegar konur eru í meirihluta? Hvernig hefur píkuveldisvæðingin (ef það er að líða yfir ykkur vegna orðsins „píka“, bendi ég á þessa grein) mótað vinnustaði, menntastofnanir og fjölmiðla?
Skoðum þrjú ráðuneyti
Þegar ég skrifaði greinina „The Feminization of the Icelandic State“ störfuðu 52 konur og 23 karlar í dómsmálaráðuneytinu. Á skrifstofu borgararéttinda störfuðu sjö konur og einn karl. Nákvæmlega sama kynjahlutfall var á jafnréttisskrifstofunni. Í mennta- og barnamálaráðuneytinu störfuðu 50 konur og 18 karlar. Í heilbrigðisráðuneytinu voru 56 konur og 22 karlar. Á skrifstofu ráðuneytisstjóra starfaði enginn karl. Á skrifstofu heilbrigðisþjónustu störfuðu fimmtán konur og enginn karl.
Menntakerfið
Í grunnskólum Reykjavíkur voru 36 af 42 skólastjórum konur og 35 af 39 aðstoðarskólastjórum. Af hverju farið þið ekki í skólana, talið við drengina, foreldrana og kennarana? Spyrjið hvað skólarnir gera þegar drengirnir dragast aftur úr. Það hlýtur að vera hægt að gera því skil á milli tveggja dálka um Kristrúnu og Þorgerði Katrínu.
Þetta eru spurningar sem menn með fastan dálk og þúsundir lesenda gætu ekki aðeins lagt fyrir ráðherra, þeir gætu líka reynt að svara þeim sjálfir.
Hvar hef ég rangt fyrir mér?
Ég skrifaði grein um þetta undir fullu nafni, kallaði fyrirbærið píkuveldisvæðingu („Femínismi og fáviskuræði“) og stend við það orð. Finnist ykkur orðið ljótt, þá megið þið alveg hneykslast á því. En þegar þið, hinir píkubörðu íslensku karlmenn, eruð búnir að hneykslast á mér væri gaman að heyra hvað ykkur finnst. Hvar hef ég rangt fyrir mér? Hvað stenst ekki? Hvaða skýringu hafið þið sjálfir á því sem hefur gerst í íslensku þjóðfélagi undanfarna áratugi? Ég skal með ánægju taka þann slag við ykkur.
Þorgerður Katrín og Kristrún verða báðar farnar úr ríkisstjórn einhvern daginn. En við munum enn sitja uppi með skólana, ráðuneytin og stofnanirnar, með sínar ráðningarvenjur, vók viðhorf og reglur. Mig langar að vita hvað þið hafið um það að segja.
Svo látið ykkur vaxa bakbein, strákar. Eða, eins og Dave Rubins sagði, „go to the ball store.“
Höfundur er fjölmiðlafræðingur