Grammy-verðlaunahátíðin fer fram sunnudaginn 7. febrúar 2027 og verður í fyrsta sinn sýnd á Disney+. Tilnefningar til verðlaunanna voru tilkynntar í dag.
Flestar tilnefningar hlaut breska tónlistarkonan Raye með ellefu talsins og jafnaði hún met Beyonce frá 2025 yfir flestar tilnefningar kvenkyns listamanns á einu ári. Raye er tilnefnd í stóru flokkunum þremur, plötu, lagi og upptöku (e. record) ársins, auk ýmissa annarra.
Á hæla Raye kemur hin spænska Rosalía sem hlaut níu tilnefningar en hún gaf út hina margverðlaunu Lux fyrir akkúrat ári síðan.
Kántrístjarnan Ella Langley er með sjö tilnefningar, þar á meðal í stóru flokkunum þremur og sem besti nýi tónlistarmaður. Jafnar Langley með sjö tilnefningar eru Miranda Lambert, Phoebe Bridgers og Olivia Rodrigo.
Íslendingar með fjórar tilnefningar
Íslendingar eiga tvo fulltrúa á listanum. Lagið „Berghain“ með Rosalíu, Björk og Yves Tumor er tilnefnt sem lag og upptaka ársins auk þess sem tónlistarmynbandið við lagið er tilnefnt sem tónlistarmyndband ársins.
Björk var fyrst tilnefnd til Grammy-verðlauna árið 1994 og hefur sextán sinnum áður verið tilnefnd til verðlaunanna en aldrei unnið.
Laufey er síðan tilnefnd fyrir besta hefðbundna popplagaflutning (e. Best Traditional Pop Vocal Performance) fyrir lagið „Madwoman“. Laufey hefur tvisvar áður verið tilnefnd fyrir plöturnar A Matter of Time og Bewitched í flokki sígildra poppplatna og vann í bæði skiptin.
Beyonce heldur síðan áfram að skrá sig á spjöld Grammy-sögunnar með sinni hundruðustu tilnefningu sem er fyrir lagið „Morning Dew (Donk)“ í sóló R&B-flokki.
Hún sló met yfir flesta Grammy-sigra árið 2023 þegar hún nældi í sína 32. styttu og tók metið frá Georg Solti. Árið 2024 sló hún síðan metið yfir flestar tilnefningar þegar hún nældi í sína 88. tilnefningu og sigldi fram úr eiginmanni sínum, Jay-Z. Beyonce hefur verið tilnefnd til verðlaunanna árlega síðan um aldamótin og hefur alls hreppt 35 verðlaun á hátíðinni.
Hér að neðan má sjá tilnefningar í stóru flokkunum þremur auk besta nýja tónlistarmanns. Heildarlista yfir tilnefningar má sjá á heimasíðu Grammy-verðlaunanna.
Upptaka ársins (Record Of The Year)
- „Man I Need“ - Olivia Dean
- „Choosin' Texas“ - Ella Langley
- „I Just Might“ - Bruno Mars
- „WHERE IS MY HUSBAND!“ - Raye
- „the cure“ - Olivia Rodrigo
- „Berghain“ - ROSALÍA, Björk, Yves Tumor
- „The Fate of Ophelia“ - Taylor Swift
- „Dracula“ - Tame Impala With JENNIE
Breiðskífa ársins (Album Of The Year)
- Lost Weekend - Phoebe Bridgers
- The Art of Loving - Olivia Dean
- Dandelion - Ella Langley
- The Romantic - Bruno Mars
- This Music May Contain Hope - Raye
- You Seem Pretty Sad For a Girl So In Love - Olivia Rodrigo
- Lux - Rosalía
- The Life of a Showgirl - Taylor Swift
Lag ársins
- „Berghain“ - ROSALÍA, Björk, Yves Tumor
- „Choosin' Texas“ - Ella Langley
- „The Cure“ - Olivia Rodrigo
- „Hate That I Made You Love Me“ - Ariana Grande
- „I Knew It, I Knew You“ - Taylor Swift
- „Man I Need“ - Olivia Dean
- „Risk It All“ - Bruno Mars
- „WHERE IS MY HUSBAND!“ - Raye
Besti nýi tónlistarmaður
- Angine de Poitrine
- Geese
- Ella Langley
- Slayyyter
- SIENNA SPIRO
- Don Toliver
- Remi Wolf
- The Womack Sisters