„Mér finnst auðvitað leiðinlegt að sjá hann fara. Það er alltaf leiðinlegt að missa félaga en ég óska honum góðs gengis,“ sagði Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra.
Það sé að sjálfsögðu aldrei gott að sjá á eftir fólki en ríkisstjórnin verði metin af verkum sínum. Hún hafi fengið sterkt umboð og hafi það enn. Til að mynda séu hallalaus fjárlög fram undan, frumvarp sem að Ingvar sagði að væri ein af ástæðunum fyrir því að skipti um flokk. Henni líði vel í ríkisstjórninni sem vinni að sterkum stjórnarsáttmála samkvæmt heilindum.
„Við verðum fyrst og fremst metin af verkum okkar, ekki út frá tilfæringum á milli flokka.“
Kristrún beri áfram fullt traust til Þorgerðar Katrínar. Það sé ekki þægilegt að upplifa það að fólk gangi úr þingflokknum. Það sé full samstaða innan ríkisstjórnarinnar um fjárlögin og það sem þjóðin vilji helst eru þingmenn sem vinna að góðum verkum.
Ekki gott að missa félaga
Guðrún Hafsteinsdóttir sagði í viðtali í morgun að fleiri þingmenn hefðu rætt við hana um að skipta um flokk. Hún nefndi þó engin nöfn. Aðspurð sagðist Kristún ekki kannast við hvaða þingmenn Guðrún gæti verið að ræða við.
„Ég þekki til neins slíks og ég held að það sé ekki eðlilegt að vera að fabúlera um svona hluti í fjölmiðlum. Það er allt með kyrrum kjörum í Samfylkingunni,“ sagði hún.
„Það er ekki gott að missa félaga en ég óska honum velfarnaðar í starfi.“
Hún segir það ekki sitt að svara hvort hún skilji ákvörðun Ingvars en tók fram að hún væri ekki sammála því hvernig hann stillt málinu upp.