Gunnar Smári Egilsson, ritstjóri Samstöðvarinnar, segir að vegna dráttar á greiðslu fjölmiðlastyrks standi stöðin frammi fyrir greiðsluvanda. Það hrikti í stoðum hennar og leita þurfi á náðir áskrifenda.„Ég leita til allra stuðningsmanna Samstöðvarinnar um hjálp,“ segir Gunnar Smári í færslu á samfélagsmiðlum.Rætt hafi verið um að opinber stuðningur til einkarekinna fjölmiðla kæmi snemma í ár. Því hafi Samstöðin reiknað með þrátt fyrir að styrkurinn hafi ekki borist fyrr en á gamlársdag í fyrra.
Gunnar Smári sendir út neyðarkall – „Ritstjóri á barmi taugaáfalls af fjárhagsáhyggjum“