Klukkan 18:19, mánudagskvöldið 9. nóvember, var flugvél KLM í aðflugi að Schiphol-flugvelli í Amsterdam þegar báðir GPS-móttakarar vélarinnar urðu skyndilega óvirkir. Flugstjórinn tilkynnti flugturninum um þetta. Flugmenn Lufthansa-vélar og Air France-vélar tilkynntu sambærileg vandamál.
Á sama tíma tók áhugamaðurinn Kees Westerdijk frá Fríslandi eftir því að tugir flugvéla yfir Hollandi misstu GPS-merki sín, samkvæmt frétt hollenska dagblaðsins NRC sem greindi frá málinu í gær. Sjö vélar í aðflugi að Schiphol komust í vandræði en lentu örugglega með aðstoð annarra leiðsögukerfa.
Skipuleg truflun líkleg
NRC segir líklegt að ástæðan sé skipulögð truflun GPS-merkisins eða „jamming“ á ensku – það er að segja viljandi truflun á leiðsögumerkjum. Þetta er gert með því að senda út útvarpsmerki sem yfirgnæfir mjög veik merki frá leiðsögugervihnöttum. GPS-móttakari flugvélar getur þá ekki ákvarðað áreiðanlega staðsetningu hennar. Truflunin stóð í um 20 mínútur.
Bandaríski gagnagreinandinn John Wiseman rýndi í gögn og telur uppruna truflananna við Norðursjó, norður af hollensku eyjunni Texel. Greining hans bendir til þess að truflunin hafi átt upptök sín nálægt sjávarmáli, hugsanlega á skipi.
Böndin berast að Rússum
Sex rússnesk skip voru á svæðinu á þessum tíma. Þar á meðal þrjú flutningaskip sem tengjast rússneskum hergagnaflutningum. Rússneskt herskip fylgdi þeim og herskip NATO-ríkja fylgdust með ferðum þeirra.
Ekki hefur verið staðfest að rússnesku skipin hafi valdið truflununum. Alþjóðaflugmálastofnunin hefur hins vegar sagt að Rússland og Norður-Kórea séu helstu sökudólgarnir. Hollensk flugmálayfirvöld telja líklegt að truflanirnar hafi verið vísvitandi og fjarskiptaeftirlit landsins rannsakar málið. Þetta er í annað sinn á fjórum mánuðum sem atvik af þessu umfangi á sér stað í Hollandi.