„Ég er pínu vonsvikin,“ sagði Þorgerður er hún ræddi við fréttamenn í Alþingishúsinu fyrir þingfund.
Aðspurð sagðist Þorgerður hafa átt mörg samtöl og símtöl síðustu mánuði um óánægju Ingvars í flokknum. Hann sagðist hafa byrjað að tala við fulltrúa Sjálfstæðisflokksins sömu viku og Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar.
„Það eru ákveðin vonbrigði með þetta,“ sagði hún.
Breytingar kosti fórnir
Þorgerður varði löngum tíma í viðtalinu í að tala um fjárlög fyrir árið 2027 en Ingvar sagði fyrr í morgun að fjárlagafrumvarpið hefði gert útslagið, sér í lagi aukin skattheimta og lítill fyrirsjáanleiki með litlu samráði við atvinnulífið.
Hún ítrekaði að verið væri að fara úr átta hundruð milljarða króna halla ríkisstjórnar sem Sjálfstæðisflokkurinn var hluti af, í hallalaus fjárlög. Einnig sagði hún að það að vera þingmaður og ráðherra í meirihluta þýðir að taka þurfi erfiðar ákvarðanir.
„Ákvarðanir sem reyna á það að maður sé með sterk bein í pólitík,“ sagði Þorgerður. „Við erum komin til þess að breyta og það kostar ákveðnar fórnir.“
Algjör einhugur sé innan Viðreisnar og haldi þau núna öll áfram sem eitt.
„Við vitum það að þessi ríkisstjórn er komin til að breyta, bæta samfélagið og gera það í þágu almannahagsmuna.“
„Ekki nema þú haldir að konur geti það ekki“
Aðspurð hvort hún íhugi stöðu sína sagði Þorgerður það eðlilegt hjá formönnum flokka að hugsa ítrekað um slíkt.
„Það er ekki sjálfgefið að vera formaður í flokki, eitthvað sem ég trúi að hver og einn er sífellt að endurskoða,“ sagði hún.
Sjálf hafi Þorgerður um 25 ára reynslu úr pólitík og því upplifað alls konar uppákomur. Þegar hún sé í stjórnarmeirihluta þurfi hún að vera virkari, með meiri aga og samþykkja mál sem séu ekki alltaf hennar hjartans mál. Á móti kemur geta þeir sem eru í stjórnarmeirihluta verið frjálsari og talað meira fyrir hugsjónum flokksins.
Elísabet Inga spurði Þorgerði einnig hvort það hefði áhrif á starf flokksins og sé erfitt að vera bæði formaður og utanríkisráðherra.
„Ég get þetta allt,“ svaraði Þorgerður.
Ef til vill þyrfti að breyta verklagi en hún geti ekki séð nema að slíkt fyrirkomulag gangi vel hjá öðrum og vísaði til Lars Lokke Rasmussen, utanríkisráðherra Dana og formanns Moderaterne.
„Ekki nema þú haldir að konur geti það ekki,“ bætti hún við.
Fjöldi dæma er um að formenn stjórnmálaflokka gegni embætti utanríkisráðherra. Forveri Þorgerðar í embætti var Bjarni Benediktsson sem var þá einnig formaður Sjálfstæðisflokksins.
Elísabet ítrekaði spurninguna sína og spurði hvort Þorgerður næði nógu vel utan um flokkinn þar sem að hún hefði misst tvo þingmenn á skömmum tíma. Það væri óháð kyni. Þorgerður sagðist þá undrast svona spurningar en endurtók að skoða þyrfti að breyta verklagi.
„Þetta er eitthvað sem er alveg hægt að gera og ég held að það hafi sýnt fram á það.“
Þorgerður bendir þá á að á kjörtímabilinu hafi Sjálfstæðisflokkurinn misst fjóra þingmenn. Bjarni Benediktsson, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir og Vilhjálmur Árnason voru öll kjörin fyrir flokkinn en hafa nú snúið sér að öðrum störfum. Ekkert þeirra er þó enn á þingi.
Allir samþykktu stjórnarsáttmálann
Ingvar sagðist í morgun ekki getað fullyrt að fleiri innan Viðreisnar séu sömu skoðunar og hann. Þorgerður sagði að miðað við þingflokksfundinn sem haldinn var í morgun sé algjör einhugur meðal þingmanna um að halda áfram.
Hann sagði einnig að með fyrirætlunum sínum hefði Viðreisn svikið kjósendur.
„Ingvar samþykkti stjórnarsáttmálann alveg eins og allir aðrir þingmenn,“ sagði Þorgerður.
„Við erum á fullu í takti við hagsmuni Viðreisnar. Fólkið sem kaus Viðreisn í Norðausturkjördæmi var ekki að kjósa Sjálfstæðisflokkinn.“
Viðreisn fékk 9,4 prósent atkvæða í Norðausturkjördæmi í þingkosningum árið 2024 sem samsvarar tæplega 2300 kjósendum. Með brotthvarfi hans úr flokknum er Viðreisn ekki með neinn þingmann í kjördæminu.
Til stóð að Þorgerður myndi vera í Brussel í dag til að sækja fund vegna EES-samningsins. Hins vegar hafi hún ákveðið að snúa heim og sagði það sérstaklega hafa verið til þess að geta veitt fréttafólkinu viðtal.
„Ég elska ykkur öll, ég er farin inn í þingsal,“ sagði Þorgerður að lokum og gekk burt.