Þetta er mat Guðrúnar Aspelund sóttvarnalæknis sem segir frá á vef embættis landlæknis. Sagt er frá þessu í tilefni af nýlegri yfirlýsingu samtaka kjarnorkueftirlitsstofnana í Vestur-Evrópu (WENRA), samtaka yfirmanna evrópskra geislavarnastofnana (HERCA) og yfirmanna norrænna geislavarna- og kjarnöryggisstjórnvalda (NORA).
Á vef landlæknis segir að að mati Geislavarna ríkisins sé afar ólíklegt að geislavirk efni frá hugsanlegu kjarnorkuslysi í Úkraínu berist til Íslands í því magni að þörf yrði á sérstökum aðgerðum, svo sem inntöku joðtaflna, skýlingu eða brottflutningi fólks.
„Vegna mikillar fjarlægðar Íslands frá Úkraínu myndu geislavirk efni dreifast og þynnast verulega áður en þau gætu borist hingað til lands. Auk þess hefur geislavirkt joð (joð-131) tiltölulega stuttan helmingunartíma, um átta daga, og dregur því úr geislavirkni þess með tímanum.
Geislavarnir ríkisins hafa fylgst náið með þróun mála í Úkraínu frá upphafi stríðsins og munu halda því áfram í samstarfi við erlenda aðila. Stofnunin gerir jafnframt reglulega spár um hugsanlega dreifingu geislavirkra efna frá kjarnorkuslysi í Úkraínu og upplýsir innlenda samstarfsaðila eftir því sem við á.
Joðtöflur aðeins teknar samkvæmt fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda
Við alvarlegt kjarnorkuslys getur geislavirkt joð losnað út í umhverfið. Ef það berst inn í líkamann getur það safnast fyrir í skjaldkirtli og aukið hættu á skjaldkirtilskrabbameini, einkum hjá börnum og ungu fólki.
Joðtöflur innihalda ógeislavirkt joð sem getur komið í veg fyrir upptöku geislavirks joðs í skjaldkirtilinn ef þær eru teknar á réttum tíma. Þær veita hins vegar ekki vernd gegn öðrum geislavirkum efnum eða geislun almennt.
Joðtöflur á einungis að taka samkvæmt fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda. Ástæðulaus inntaka þeirra veitir enga gagnlega vernd og getur valdið aukaverkunum, meðal annars truflunum á starfsemi skjaldkirtils.
Á vegum sóttvarnalæknis eru til öryggisbirgðir af joðtöflum ef svo ólíklega vildi til að þeirra yrði þörf. Ekki er því mælt með að almenningur á Íslandi kaupi joðtöflur til að bregðast við hugsanlegri geislavirkni vegna stríðsins í Úkraínu,“ segir í yfrlýsingu sóttvarnalæknis á vef landlæknis.