Meðal þess sem þeir félagarnir gerðu í borginni var að fara í útsýnistúr um borgina í bifreið sem breyttist á einu augabragði í bát.
Þeir gistu í húsbíl alla ferðina en það sem vakti sérstaka athygli var þegar þeir fóru og spreyttu sig í steppdansi. Til að byrja með dönsuðu þeir vinirnir saman en svo átti að finna sér nýjan dansfélaga.
Þá lenti Dóri DNA með ungum dreng. Þegar Steindi sá þá félagana saman sprakk hann úr hlátri eins og sjá má hér að neðan.