Dómur þess efnis var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 5. nóvember síðastliðinn en birtur í morgun. Með honum hlutu Kristinn Hólm Runólfsson og Kristinn Már Viðarsson sex ára fangelsisvist, Kishan Mohabier-Panday fjögurra og hálfs árs fangelsisvist og Sandeep Shiva Kamal Singh og Mahesh Odeai fjögurra ára.
Fluttu inn rúm tólf kíló
Þeir voru ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa staðið að innflutningi á 10,5 kílóum af amfetamíni, með 59 til 65 prósenta styrkleika, og tveimur kílóum af kókaíni, með 86 prósenta styrkleika, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni.
Kristinn Már og Kristinn Hólm hafi skipulagt innflutninginn í félagi við samverkamenn í Hollandi sem síðan hafi fengið Kishan til að flytja efnin til Íslands og hann hafi fengið Sandeep og Mahesh með í för. Efnin hafi verið falin í fölskum rafgeymiskassa undir rúmi í húsbifreið sem Kishan, Sandeep og Mahesh komu með til Seyðisfjarðar miðvikudaginn 27. maí 2026 sem farþegar með farþegaferjunni Norrænu frá Hirtshals í Danmörku.
Sandeep og Mahesh hafi síðan ekið bifreiðinni frá Seyðisfirði á tjaldsvæðið í Laugardal í Reykjavík þar sem þeir ásamt Kishan voru handteknir 29. maí 2026 með efnin í vörslum sínum.
Þá segir að þeir Kristinn Már og Kristinn Hólm hafi einnig verið ákærðir fyrir önnur fíkniefnabrot með því að hafa haft alls kyns fíkniefni og frammistöðubætandi í fórum sínum.
Samskipti við Pornstar
Í niðurstöðukafla dómsins segir að Kristinn Hólm hafi neitað sök í málinu en miðað við gögn og upplýsingar sem komu fram í málinu, svo sem um fund Kristins og Kristins með tveimur Hollendinganna, texti í síma Kristins Hólm um þann fund, tengsl Kristins Hólms við menn í Hollandi sem undirbjuggu fíkniefnin til flutnings og fengu Kishan til að flytja þau hingað til lands, sími sem falinn var á heimili hans, samskipti sem fundust í þeim síma og í síma Hollendingsins Patrick, sem notaði notandanafnið Pornstar, óvenjuleg ferðatilhögun Kishan, Sandeep og Mahesh, svo og gögn sem fundust í farsíma Kristins Más, þá þyki ekki varhugavert að slá því föstu, gegn eindreginni neitun Kristins Hólms, að hann hafi verið þátttakandi í skipulagningu þess brots sem lýst er í ákæru, í félagi við aðra.
Skýringar hans á þeim atriðum sem að framan greinir þyki sömuleiðis ótrúverðugar. Saknæmiskröfur almennra hegningarlaga þyki enn fremur vera uppfylltar. Verði Kristinn Hólm því sakfelldur fyrir það brot sem honum er gefið að sök.
Kristinn Már hafi einnig neitað sök en ekki þyki óvarlegt að telja hafið yfir skynsaman vafa að hann hafi átt þátt í því að skipuleggja þann innflutning fíkniefna sem um ræðir í ákærunni. Skýringar hans á atvikum málsins og atriðum þyki ótrúverðugar, enda hafi hann verið missaga um ýmislegt í málinu, svo sem það hvort þeir Kristinn Hólm hafi hitt Hollendingana fyrir tilviljun eða hvort Kristinn Hólm hafi þekkt til þeirra og hvað varðar skýringar á ummælum hans um týnd efni. Því verði hann einnig sakfelldur samkvæmt ákæru.
Einn játaði
Þá segir í dóminum að Kishan hafi fyrir dómi játað innflutninginn og að hafa fengið hina Hollendingana tvo til að koma með sér í það verkefni.
Óumdeilt hafi verið í málinu að hinir tveir Hollendingarnir hafi komið til landsins með húsbílinn og að í honum hafi verið fíkniefni. Þeir hafi hins vegar neitað sök og sagst ekki hafa vitað af fíkniefnunum.
Ætla megi að þeir hafi vitað eða í það minnsta mátt vita að tilgangur ferðarinnar hingað til lands hafi verið sá að flytja hingað fíkniefni, líkt og Kishan hafi sagt fyrir dómi. Verði að lágmarki að gera ráð fyrir því að þeir hafi, í ljósi forsögunnar, mátt gera sér grein fyrir því að fíkniefni væru falin í húsbifreiðinni en látið sér það í léttu rúmi liggja.
Sem áður segir voru Íslendingarnir tveir dæmdir til sex ára fangelsisvistar, einn Hollendingurinn til fjögurra ára og sex mánaða og hinir tveir fjögurra ára. Mennirnir voru einnig dæmdir til að sæta upptöku á fíkniefnum og símum og til greiðslu alls sakarkostnaðar, um 36,5 milljónir króna.