Stuðningsmenn Jensens Huangs hafa stofnað til undirskriftarsöfnunar þar sem stjórn Nvidia er hvött til að setja Huang aftur í starf forstjóra fyrirtækisins. 175 þúsund manns hafa skrifað undir áskorunina og þar á meðal eru Elon Musk, stofnandi SpaceX sem jafnframt er ríkasti maður heims, og Tim Sweeny, framkvæmdastjóri Epic Games sem framleiðir Fortnite.
Í tísti á samfélagsmiðlinum X segir Musk að Huang hafi stýrt Nvidia með myndarskap. Hann segir Huang hafa handsalað marga samninga án þess að þeir væru skriflegir. „Án Jensens eiga sumir af þessum mikilvægu samningum eftir að glatast,“ skrifaði Musk.
Hlutabréfaverð Nvidia tók mikla dýfu þegar upp komst um framhjáhald Huangs með konu sem er sögð vera kínverskur njósnari. Hann er einnig sagður hafa haldið við samstarfskonu sína hjá Nvidia en þau eru bæði gift. Huang lét af störfum í síðustu viku.
Segja forstjórann ekki hafa fengið réttláta málsmeðferð
„Við skrifum af þakklæti til Jensens Huangs þegar við leggjum fram kröfu okkar til stjórnarinnar: ráðið Jensen aftur á meðan óháð rannsókn leiðir niðurstöður í ljós, ekki nema þið getið lagt fram sannfærandi sönnun fyrir því að brottrekstur hans hafi verið Nvidia fyrir bestu,“ segir í opnu bréfi sem stuðningsmenn Huangs birtu á netinu. Hópurinn er sagður samanstanda af starfsmönnum fyrirtækisins, bæði núverandi og fyrrverandi, viðskiptafélögum, hluthöfum og stuðningsmönnum.
Hópurinn telur að Huang hafi verið látinn taka pokann sinn án réttlátrar málsmeðferðar.
Endurráðning talin ólíkleg meðan á rannsókn stendur
Financial Times segir Huang ræða mögulega endurkomu sína til fyrirtækisins við trúnaðarvini. Haft er eftir einum að hópi stjórnenda úr Kísildal hafi verið safnað saman til að tala fyrir endurráðningu Huangs.
Endurráðning Huangs er talin ólíkleg á meðan innanhússrannsókn Nvida á hneykslinu er ólokið. Þá hefur Donald Trump Bandaríkjaforseti sagt að alríkislögreglan FBI rannsaki samband forstjórans við Alice Huang, hinn meinta kínverska njósnara.