Áætlaður rekstrarhalli heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni er 5-15 prósent. Forstjórar sex heilbrigðisstofnana, allra nema höfuðborgarsvæðisins, hafa undirritað minnisblað sem liggur fyrir fjárlaganefnd Alþingis um að ef ekki fáist viðbótarfé verði hallinn um fimm milljarðar á árinu og bætist við uppsafnaðan halla fyrri ára.
Hvað veldur þessum halla?
„Þetta er í rauninni þróun sem hefur verið í gangi síðustu 4-5 árin og snýst að meginhluta um að kauphækkanir eða launahækkanir bæði stofnana og í kjarasamningum hafa verið talsvert meiri en nemur þeim hækkunum sem stofnanir hafa fengið í fjárframlög,“ segir Jón Helgi Björnsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands.
Ríflega níu milljarða rekstrarhalli á stofnunum heilbrigðiskerfisins
Nýverið var sagt frá rúmlega tveggja milljarða rekstrarhalla á Sjúkrahúsinu á Akureyri og 2,3 milljarða á Landspítalanum. Heildarhallinn í heilbrigðiskerfinu gæti því samtals numið 9,3 milljörðum króna. Ekki eru komnar tölur frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Er niðurskurður fram undan hjá heilbrigðisstofnununum?
„Já, að einhverju leyti, ef fæst ekki einhver bæting á fjárframlög þá er í rauninni fram undan veruleg breyting á rekstrarkostnaði, það þarf að skera niður, og það mun hafa talsverð áhrif á þjónustu. Það er óhjákvæmilegt.“ Jón segir að reynt verði eftir fremsta megni að komast hjá því að skera niður þjónustu: „Auðvitað reyna menn að forðast það í lengstu lög en þetta er það mikill munur að í rauninni er ekki hægt að lækka kostnaðinn um svona stóra prósentutölu án þess það hafi áhrif á þjónustu.“
Mikill vandi sem verður ekki eingöngu leystur með niðurskurði
Forstjórar heilbrigðisstofnana komu fyrir fjárlaganefnd Alþingis í síðustu viku. Jón segir að enn komi ekki niðurskurðakrafa að ofan en vandinn sé það mikill að hann verði ekki eingöngu leystur með því að skera niður:
„Þetta er bara það stór vandi að það er rosalega erfitt að ætla að leysa hann alfarið með niðurskurði. Þess vegna erum við að biðla til fjárveitingavaldsins að koma til móts við stofnanirnar með fjárframlagi.“