Ógrynni matvæla fór til spillis þegar kælar í hundruðum matvöruverslana í Frakklandi voru hitaðir í allt að fimmtíu gráður yfir nótt. Þrjótarnir sem stóðu að árásinni nýttu sér öryggisbrest í stýrikerfum kælanna sem gerðu þá berskjaldaða.
Jean-Noël Barrot, utanríkisráðherra Frakklands, þrýsti á evrópska starfsbræður sína að samþykkja refsiaðgerðir gegn Íran fyrir lok mánaðarins þegar þeir funduðu í Brussel í morgun, að sögn evrópska blaðsins Politico.
„Ég kom hingað til þess að sýna starfsbræðrum mínum sannanir. Ég fer fram á evrópskar refsiaðgerðir gegn einstaklingunum og stofnunum sem báru höfuðábyrgð á árásinni,“ sagði Barrot.
Frönsk stjórnvöld telja að íranski byltingarvörðurinn hafi staðið að árásinni. Barrot sagðist telja að mikill meirihluti utanríkisráðherra Evrópusambandsríkja væru fylgjandi refsiaðgerðum.
Sambærilegar árásir hafa verið gerðar á kæla matvöruverslana og blóðbanka í fleiri Evrópuríkjum á undanförnum vikum.