Allt stefnir í að sala á sumarhúsum verði sú minnsta í sex ár, segir Páll Pálsson fasteignasali, sem sækir tölur í kaupverðsjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar. Það sem af er ári hafa verið gerðir 253 kaupsamningar en voru 344 á sama tíma í fyrra. Það jafngildir 26,5% samdrætti á milli ára.
Páll telur að háir vextir og mikil verðbólga ásamt óvissuþáttum í alþjóðaumhverfinu, svo sem heimsmarkaðsverði á olíu, séu helsta skýringin.
„Við þessar aðstæður þá virðist fólk bara halda að sér höndum og það þorir ekki að taka neina áhættu eða sénsa. Það er svona stærsta skýringin myndi ég segja,“ segir Páll sem telur að sama mynstur megi sjá víðar á mörkuðum.
„Ég hef heyrt bæði frá bílasölum og meira að segja stjórnendum raftækjaverslana að það er eins og fólk sé bara að neyta sinnar neyslu af því að það þarf þess,“ segir Páll
„Ef blandarinn bilar þá kaupir þú þér nýjan blandara en fólk er ekkert að eyða neinu að óþörfu eins og staðan er núna,“ segir hann.
Alls eru skráð 15.630 sumarhús á landinu. Meira en helmingur þeirra, eða 8.208, er á Suðurlandi. Sumarhúsum hefur fjölgað um þriðjung frá 2005 þegar þau voru skráð 10.550.
Meðalfermetraverð á sumarhúsum er um 500–600 þúsund krónur, sem samsvarar 50–60 milljónum króna fyrir 100 fermetra bústað. Páll segir að júní sé yfirleitt söluhæsti mánuður ársins á sumarbústaðamarkaðnum.