Ingvar tilkynnti í færslu á Facebook í morgun að hann ætlaði að yfirgefa Viðreisn og ganga frekar í raðir Sjálfstæðismanna. Rétt rúmur mánuður er liðinn frá því að Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar og fyrr á þessu ári sagði Guðmundur Ingi Kristinsson sig úr Flokki fólksins.
„Það er brostinn á flótti í stjórnarliðinu,“ segir Eiríkur.
Það hafi verið hægt að líta á brotthvarf Jóns og Guðmundar sem einhver einstök tilvik en þegar sá þriðji segir skilið við ríkisstjórnarflokkana sé „þetta orðinn illviðráðanlegur straumur úr stjórnarliðinu“ og hriktir nú í stoðum ríkisstjórnarinnar.
Meiri ólga innan flokksins en gert var ráð fyrir
„Ríkisstjórnin veikist auðvitað í samræmi við minnkandi meirihluta á þinginu og það sem gerist við það þegar ríkisstjórn hefur svona nauman meirihluta eins og nú er orðin raunin er að þá fær hver einstakur þingmaður meira vægi og tækifæri til þess að beita svona einhvers konar úrslitakostum gagnvart ríkisstjórninni,“ segir hann.
Ríkisstjórnarflokkarnir eru nú með samtals 33 þingmenn sem er næmur meirihluti þingmannanna 63.
„Það verður sem sagt erfiðara fyrir ríkisstjórnarforystuna að stýra sínum málum eftir einhvers konar samræmdum vilja sínum þar sem hver og einn þingmaður stjórnarliðsins fær aukið vægi í hendurnar. “
Eiríkur segir að það sé augljóslega meiri misklíð innan flokksins en hefur verið gefið í skyn. Eftir brotthvarf Ingvars sé að teiknast upp mynd af meiri ólgu innan flokksins.
„Auðvitað getur maður ekkert sagt til um það hvaða þreifingar eiga sér stað einhvers staðar á bak við tjöldin en atburðir dagsins benda auðvitað til þess að óánægjan sé miklu meiri heldur en við héldum og þess vegna geti vel verið að það séu þá fleiri sem eru líka óánægðir með sína stöðu,“ segir hann.
„En væntanlega leggur ríkisstjórnin núna allt kapp á það að þjappa liðinu saman og þétta raðirnar þannig að það er væntanlega það sem er í gangi núna.“
Hingað til haf lítið bent til þess að ríkisstjórnin væri „í bráðri lífshættu“ en nú sé hún orðin mun veikari.
„Það blasir við að hún mun þurfa minna til þess að steyta á einhverju skeri í framhaldinu og hún má hreinlega ekki við fleiri áföllum og frekar að liðhlaup úr liðinu muni gera henni feikilega erfitt fyrir.“