Þetta sagði Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra og þingmaður Viðreisnar, í samtali við fréttamenn í ljósi þeirra tíðinda að Ingvar Þóroddsson sagði sig úr flokknum fyrr í dag og gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn.
Hún segir stefnu ríkisstjórnarinnar vera skýra og minnir á að allir stjórnarþingmenn hafi greitt atkvæði með stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.
Ertu sár út í Ingvar?
„Já, ég er það. Hissa, sár og svekkt.“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, ræddi við fréttastofu fyrr í dag. Þar var hún spurð hvort það væri erfitt að vera bæði formaður flokksins og utanríkisráðherra. Hún svaraði því neitandi.
„Ég get þetta allt,“ sagði Þorgerður en viðurkenndi þó að ef til vill þyrfti að breyta verklagi.
„Þetta er eitthvað sem er alveg hægt að gera og ég held að það hafi sýnt fram á það,“ bætti hún við.
Spurð hvort það sé erfitt að formaður flokksins sé líka utanríkisráðherra með tilheyrandi utanlandsferðum segir Hanna Katrín:
„Þetta virkar auðvitað en auðvitað er þetta áskorun, það gefur augaleið. Við erum með öflugan varaformann sem hefur stigið sterkt inn. Við náum alveg utan um þetta en auðvitað er þetta áskorun, bæði fyrir formanninn og þingflokkinn.“
Ingvar vísaði til þess þegar hann útskýrði ákvörðun sína að skattahækkanir í fjárlagafrumvarpinu hefðu gert útslagið. Hann hefði ekki getað sætt sig við skattheimtu sem bitni á ferðamannaiðnaðinum. Hann vísaði þá til neikvæðra áhrifa á Norðausturkjördæmi, þaðan sem hann kemur.
„Eins og ég segi þá er þetta erfitt verkefni. Við förum í þetta með heilum hug því við trúum því að ávinningurinn fyrir okkur sem samfélag sé meiri. Ég er ekki vör við það að þessi umræða nái út fyrir Ingvar,“ segir Hanna Katrín og telur ólíklegt að það kvarnist frekar úr röðum flokksins.
„Ég vona bara að það fjölgi í honum en ég ætla ekki að fara í neinar veiðar eins og mér skilst að einhverjir séu að leika sér að þessa dagana.“