Um mánuði síðar hefur Ingvar, þingmaður Norðausturkjördæmis, skipt um flokk og stokkið úr Viðreisn í Sjálfstæðisflokkinn. Ingvar segir í viðtali í Reykjavík síðdegis að „bagaleg vinnubrögð“ hafi viðgengist í þingflokki Viðreisnar.
Honum segist hafa liðið illa með það hvernig stefna ríkisstjórnarinnar hefði þróast og þótt hann vera að svíkja kjósendur sína ef hann héldi áfram í meirihlutasamstarfinu.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar gaf fyrr í dag lítið fyrir skýringar hans um að Viðreisn hefði svikið kjósendur.
Ingvar rifjar upp í Reykjavík síðdegis að flokkurinn hafi haft fá loforð í þingkosningunum 2024 en eitt það stærsta hafi verið að ná tökum á ríkisrekstri og það án þess að hækka skatta.
„Síðan hófst kjörtímabilið og skattar voru svo sannarlega hækkaðir,“ segir þingmaðurinn og nefnir þar vörugjöld, kílómetragjald og afnám samsköttunar hjóna.
Hann tekru fram að þessi mál hafi yfirleitt verið réttlætt með því að boða innviðauppbyggingu úti á landi, til dæmis veiðigjöld.
Það hafi þó runnið á hann tvær grímur þegar samgönguáætlun leit dagsins ljós þar sem Fjarðarheiðargöng, „eini fullhannaði og rannsakaði jarðgangakosturinn“, hafi verið slegin út af borðinu.
„Þó er samt talað um að ræsa vélarnar og rjúfa kyrrstöðu,“ segir hann. Ingvar greiddi atkvæði með áætluninni en segist nú sjá eftir því.
Þegar fjárlögin voru lögð fram hafi honum heldur ekki litist á blikuna, einkum vegna hækkunar kílómetragjalds. Á sama tíma hafi verið skorið niður, þó lítillega, í vegaframkvæmdum.
Einnig hafi fleiri mál á borð við breytingar á Loftbrúnni farið illa í Ingvar.
„Og það var þá sem ég komst að þeirri niðurstöðu að ég væri ekki á réttum stað miðað við það sem ég talaði um í aðdraganda síðustu kosninga.“
Bjóst við Sjálfstæðisflokki með „Evróputvisti“
En af hverju Sjálfstæðisflokkurinn?
„Ég get sagt að sjálfstæðisstefnan, sem má segja að sé frjálslynd, hægrisinnuð og borgaraleg stefna, er eitthvað sem ég hef alltaf aðhyllst. Ég bara stóð í þeirri trú að viðreisnarstefnan væri í raun sjálfstæðisstefnan með smá tvisti, Evróputvisti, og svo framvegis.“
Allt kjörtímabilið hafi honum þótt nefndasamstarf við þingmenn Sjálfstæðisflokksins vera gott og segir hann það heyra til undantekninga að Sjálfstæðismenn leggi eitthvað til sem hann sé ósammála.
Honum hafi heldur ekki hugnast að vera utan þingflokka. „Þannig að það lá bara beinast við að fara þangað og það var bara mín ákvörðun að það yrði sá vettvangur þar sem ég myndi tala fyrir mínum gildum.“
Hafi fengið talpunkta frá ráðuneytinu til að verja breytingar á Loftbrú
En ertu sammála Jóni Gnarr um forystuleysið innan Viðreisnar og það sem hann hefur nefnt klíkuskap innan Viðreisnar?
Hann svarar að ýmislegt varðandi ákvörðunartöku og vinnulag innan Viðreisnar sem hann hafi verið ósáttur við til viðbótar við þau málefni sem hann hefur þegar nefnt.
Hann nefnir að þegar átti að gera breytingar á loftbrúnni hafi það hvorki verið rætt né kynnt á þingflokksfundi heldur hafi hann fengið skilaboð kvöldið áður um þær breytingar sem átti að kynna næsta dag. Þá hafi hann fengið talpunkta úr innviðaráðuneytinu til að verja þær breytingar.
„Þetta eru náttúrulega alveg bagaleg vinnubrögð,“ segir hann og telur að þetta sé eitt af því sem Jón Gnarr hafi talað um þegar hann sagði sig úr flokknum.
Gætu einhverjir fleiri fylgt?
„Ég þori ekki neitt að fullyrða um það,“ svarar hann og nefnir að þingflokkur Viðreisnar hafi sent yfirlýsingu í dag um að flokkurinn væri enn einhuga um að fylgja þeirri vegferð sem Ingvar sagðist ekki tengja við lengur.
„Ég ætla ekki að spekúlera eitthvað um það.“
Hann eigi enn eftir að fá hlutverk innan þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Ákvörðunin hafi verið tekin um helgina og það samtal hafi ekki átt sér stað.
„Núna er þingstyrkur þingflokka breyttur þannig að það þarf að reikna upp á nýtt hversu mörg sæti flokkar fá í nefndum. Þannig að það er of snemmt að segja eitthvað til um það.“
Hann svarar neitandi hvort einhver annar þingmaður í Viðreisn hafi rætt við sig um slíkar efasemdir. „Í hreinskilni sagt,“ svarar hann. „Ef allur þingflokkur Viðreisnar væri á sama máli og ég væri kannski engin ástæða til að yfirgefa hann.“
Alltaf þurfi að gera málamiðlanir innan þingflokka en það sé munur á því að miðla málum og styðja stefnu sem gangi gegn grundvallaratriðum sem maður trúir á.
Íhugaði að hætta á þingi
Ingvar segir Sjálfstæðismenn ekki hafa sett neinn þrýsting á sig svo að hann skipti um flokk.
„Það var ekkert pressað á mig neitt úr þeirri átt,“ segir hann. Honum hafi ekki verið boðið neitt, hvorki nefndarseta né forysta í næstu kosningum.
En kom það aldrei til greina að segja af sér þingmennsku og leyfa næsta manni Viðreisnar að taka sætið?
„Jú, ég viðurkenni það,“ svarar Ingvar, sem bætir við að hann hafi upplifað sig svíkja kjósendur það sem af er kjörtímabili.
„Ég hef fengið skilaboð þess efnis á þessu kjörtímabili í kringum alls konar ákvarðanir sem ég hef verið ósáttur við þar sem fólk segir: „Ég er mjög ósáttur við þig. Ég kaus þig í síðustu kosningum og mér finnst ég bara vera svikinn,““ segir Ingvar.
Þau skilaboð sem hann hafi fengið í dag séu þó annars eðlis.
„Núna er síðan fólk sem segir: „Ég kaus Viðreisn en ekki Sjálfstæðisflokkinn og mér finnst þú vera að svíkja mig,““ segir hann.
Erfiður dagur
Hann kveðst hafa átt símtöl við fyrrverandi flokkssystkini sín í Viðreisn.
„Þetta hefur ekki verið auðveldur dagur, en ekki af því að ég hafi haft einhverjar efasemdir um þessa ákvörðun heldur vegna þess að mér þykir mjög vænt um þennan flokk og fyrst og fremst fólkið í honum og mér finnst ekki skemmtilegt í einhverjum skilningi að snúa við þeim bakinu.“