Almannarómur og Íslandsstofa skora á tæknifyrirtækið Apple að innleiða íslensku í tækjum sínum. Það er eitt stærsta tæknifyrirtækið sem býður hvergi upp á íslensku.
„Myndmál átaksins er takki sem táknar hversu einfalt er í raun að innleiða íslenskuna í tæknina. Undirbúningurinn er að baki og lausnirnar eru tilbúnar. Apple er boðið að ýta á takkann og kveikja þannig á íslensku í lausnum sínum,“ segir á vef Almannaróms.
Apple-tölvur og símar eru afar vinsæl tæki hérlendis. Til að mynda eru Apple-símar, iPhone, þeir vinsælustu á Íslandi. Í fyrra sagðist helmingur svarenda Gallups nota iPhone.
„Við mætum jákvæðni en svo gerist ekki svo mikið“
„Tæki eru auðvitað sívaxandi hluti af lífi okkar,“ segir Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms. Tækni verði að bjóða upp á íslensku svo hún sé gagnleg, bæði í leik og starfi.
„Með máltækniáætlunum stjórnvalda hefur Ísland fjárfest alveg ótrúlega í að gera íslensku aðgengilega í tækni. Háskólar, rannsakendur og fyrirtæki og óhagnaðardrifnir aðilar hafa komið saman um að byggja gagnasöfn, til dæmis þýðingar og hitt og þetta, sem á að gera það að verkum að það sé auðveldara fyrir þau fyrirtæki sem vilja innleiða íslensku eða byggja vörur sem að nota íslensku.“
Þessi gögn standa Apple til boða án gjalds. Þá hefur stýrikerfi Apple verið þýtt yfir á íslensku til að gera fyrirtækinu eins auðvelt og mögulegt sé að innleiða íslenska tungu og að gera fyrirtækinu erfiðara fyrir að afþakka boðið.
Þrýst hefur verið á Apple að bæta við íslensku viðmóti í nokkurn tíma.
„Bæði sitjandi og fyrrverandi ráðherrar menningar og forsetar hafa haft samband við Apple með bréfaskriftum til forstjóra. Við höfum farið á fund þeirra í Vesturströndinni, í höfuðstöðvarnar.“
Síðast hafi verið haldið út með Loga Má Einarssyni, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, til Lundúna þar sem fundað var með fulltrúum Apple.
„Við mætum jákvæðni en svo gerist ekki svo mikið. Það er spurning hvort þetta sé kannski bara ekki forgangsatriði. Við teljum okkur allavega hafa reynt þessar diplómatísku leiðir mjög vel og viljum núna prófa þessa. Við gerum það auðvitað bara með jákvæðum og uppbyggilegum hætti,“ segir Lilja.
Vinsælasta tækið situr eftir
Á vef átaksins, TryggjumÍslensku.is, er bent á að Microsoft og Google bjóði upp á íslenskt viðmót, íslenskar raddir og talgreiningu. Þá bjóði flest tungumálalíkönin, það er að segja gervigreindarspjallmennin, upp á íslensku. Það eru til dæmis ChatGPT (OpenAI), Gemini (Google) og Claude (Anthropic).
Helsta undantekningin sé iPhone – sem þó sé að finna í vösum flestra Íslendinga.
„Siri skilur ekki íslensku, iPhone tekur ekki við íslensku tali, síminn les ekki skjáinn upp á íslensku og stýrikerfið sjálft er ekki til á íslensku. Öll forrit Apple heita enskum heitum í símum Íslendinga og eru nú vísbendingar uppi um að mörg börn þekki ekki íslensk orð yfir vekjaraklukku, myndavél eða vasaljós og tali frekar um alarm, camera og flashlight,“ segir á vefnum.
Þetta hafi ekki alltaf verið svona. Á níunda áratugnum hafi Apple-umboðið á Íslandi þýtt Mac-tölvur á íslensku. Frá 1991 til 2002 var stýrikerfi tölvanna þýtt á íslensku, en aldrei síðar. Eina þróunin í rétta átt á síðustu 20 árum hafi verið þegar íslenskt lyklaborð bættist við snjalltæki Apple árið 2012 og íslensku var bætt við sjálfvirkar leiðréttingar.
„Þetta eru enn einu tveir þættirnir sem virka á íslensku í Apple-tækjum,“ segir þar.
„Fyrir rúmum þrjátíu árum sýndu Íslendingar fram á það að það er hægt að bjóða upp á íslensku í Apple-tækjum, og leystu meira að segja vandann sjálfir fyrir Apple. Í dag eru gögnin til staðar; íslenskar raddir og talgreiningartækni eru til opin og ókeypis. Og við höfum meira að segja tekið okkur til og þýtt stýrikerfi Apple, sem má nálgast hér. Það litla sem á eftir að gera er eins einfalt og að ýta á hnapp.“