Lilja Benatov Hjartar skrifar:
Nýlega birtist á Facebook pistill sem settur var fram sem almenn fræðslugrein um sharía-lög, skrifuð sem svar við aðsendri grein í Fréttatímanum um sama efni. Þegar upplýsingar eru settar fram sem hlutlaus fræðsla fyrir almenning kalla þær á málefnalega rýni. Það er bæði gott og virðingarvert þegar trúaðir einstaklingar taka fram að trúariðkun þeirra sé einkamál og að þeim beri skylda til að virða lög þess lands sem þeir búa í. Ég efast heldur ekki um einlæga trú múslima og gagnrýni mín snýst á engan hátt að persónulegri trúariðkun fólks. En þegar dregin er upp glansmynd af sharía sem réttarkerfi, á sama tíma og skautað er algjörlega fram hjá kjarna þeirrar greinar sem verið var að svara, er nauðsynlegt að halda staðreyndunum til haga.
Greinin í Fréttatímanum var vissulega hörð og alhæfði margt, en kjarni hennar snerist um heiðurstengt ofbeldi, rétt kvenna til að velja sér lífsstíl og árekstur réttarkerfa. Hún snerist ekki um hvort fólk biðji fimm sinnum á dag, fasti á ramadan, þvoi sér fyrir bæn eða sleppi svínakjöti. Ég veit ekki til þess að fólk almennt mótmæli slíkum persónulegum trúarsiðum (ibadat). Að svara gagnrýni á réttarkerfi með því að benda á bæna- og matarvenjur er hins vegar eins og að verja einræðisherra með því að hrósa hirðsiðunum; þar er verið að rugla saman tveimur ólíkum heimum og skauta fram hjá kjarna málsins.
Afleiðingar glansmyndarinnar
Afleiðingar slíkrar glansmyndar sjást glöggt í athugasemdakerfum þar sem velviljaðir lesendur taka þessu sem tæmandi fræðslu, telja sharía-lög bara vera saklausar siðareglur sem „meiki sens“ og halda jafnvel að hefðbundin halal-slátrun feli í sér mikla dýravernd. Raunveruleikinn er hins vegar sá að hefðbundin halal-slátrun fer fram án deyfingar, þar sem dýrið er með fullri meðvitund þegar hálsinn er skorinn. Slíkt stangast beint á við dýraverndarlög hér á landi. Sömuleiðis er reynt að gera lítið úr umræðunni með því að benda á að orðið sharía þýði einfaldlega „lög“, rétt eins og bókstafleg þýðing orðs breyti því hvaða lagareglur felast í kerfinu sjálfu.
Staðhæfingar sem standast ekki
Þar að auki standast nokkrar sögulegar og lagalegar staðhæfingar í umræddri samantekt einfaldlega ekki skoðun. Þótt sharía sé breytilegt eftir lögskólum og veraldleg löggjöf einstakra ríkja hafi á seinni tímum mildað ýmsar reglur, þá gilda grundvallarreglur klassísks sharía-réttar enn í fjölmörgum ríkjum í dag og stangast á við þá mynd sem dregin er upp í færslunni. Því er til dæmis haldið fram að sharía hafi verið fyrstu lögin í heiminum til að veita konum erfðarétt. Það er rangt, því konur höfðu fullan erfða- og eignarrétt í Rómaveldi öldum fyrir tilkomu íslams, og í Mesópótamíu og Fornegyftalandi þúsundum ára fyrr. Auk þess kveður hefðbundinn erfðaréttur sharía (Kóraninn 4:11) á um að sonur erfi tvöfalt á við dóttur, sem samræmist illa jafnréttisreglum nútímans. Sömuleiðis þarf karlmaður ekki samþykki fyrstu eiginkonu til að giftast annarri konu samkvæmt klassískum sharía-rétti; slíkar takmarkanir hafa aðeins verið settar í veraldlegri löggjöf einstakra ríkja á seinni tímum. Þá kom einnig fram í athugasemdum við færsluna sú algenga skýring að fjölkvæni hafi verið hugsað til að bjarga stríðsekkjum, en slíkt skilyrði er hvergi bundið í lögin sjálf; klassískur sharía-réttur gerir enga kröfu um stríðsástand eða neyð til að maður megi giftast allt að fjórum konum.
Einnig er látið líta svo út sem vextir séu óþekktir í heimi íslams og lán séu þar nánast ókeypis. Þar sem slíkum staðhæfingum er haldið fram er nauðsynlegt að upplýsa fólk um alla myndina. Í flestum múslimskum ríkjum starfa hefðbundnir bankar, sem rukka venjulega vexti, hlið við hlið við íslamska banka. Og þótt íslamskir bankar megi samkvæmt sharía ekki innheimta vexti í orði kveðnu, eru lántakar þar oftast rukkaðir svipað og á Vesturlöndum – einfaldlega í gegnum aðrar fjármálaafurðir á borð við Murabaha eða Ijara. Þar kaupir bankinn eignina og selur hana aftur með fyrirfram ákveðinni álagningu. Kostnaðurinn er kallaður „álagning“ eða „hagnaðarhlutdeild“ í stað vaxta, en útkoman fyrir budduna er sú sama.
Sakamálalög sharía
Alvarlegasti skorturinn í þessari lýsingu snýr þó að sakamálalögum sharía, sem sögð eru vera „eins og íslensk lög“. Í klassískum sönnunarreglum sharía gildir vitnisburður tveggja kvenna á við einn karlmann í fjármála- og samningamálum, og í alvarlegustu refsimálunum er vitnisburður kvenna ekki tekinn gildur. Þá er alveg sleppt að nefna að í klassískum sharía-rétti, og í lögum fjölmargra íslamskra ríkja í dag, liggur dauðarefsing við apostasy (að yfirgefa trúna) eða því að gagnrýna trúna opinberlega. Slíkt er algjör andstæða við trúfrelsi, tjáningarfrelsi og vestræn mannréttindi.
Í umræddri „fræðslu“ er fólk hvað eftir annað hvatt til að taka vel eftir og kynna sér hlutina almennilega áður en það endurtekur bara það sem síðasti ræðumaður sagði. Það er ágætt heilræði sem á ekki síður við um þá sem dreifa glansmyndum af flóknum lagakerfum án þess að nefna það sem skiptir máli. Það er nauðsynlegt að taka á slíkum staðhæfingum í opinberri umræðu, ekki af heift, heldur til þess að almenningur sé upplýstur og við vitum nákvæmlega um hvað og við hverja við erum að ræða. Það er fullkomin samstaða um að fólk megi iðka sína trú í friði á Íslandi, en ef við ætlum að verja opið og frjálst samfélag þurfum við að ræða þessi mál án blekkinga og halda fast í þá einföldu grundvallarreglu að á Íslandi gildi einungis íslensk lög, jafnt fyrir alla.
Höfundur er stofnandi Borgarahreyfingarinnar og fyrrverandi meðeigandi DV og Smugunnar