Bróðir Cousins, Jonas Roeser, greindi frá andláti Cousins í síðasta mánuði en fjölmiðlar vestanhafs urðu ekki varir við tilkynninguna fyrr en í lok síðustu viku. Christian Michael Cousins fæddist 17. mars 1983 í Orange-sýslu í Kaliforníu og lést þann 22. október 2026.
„Hann var karakter, fullur af ástríðu og orku, með stórar sögur og enn stærri drauma. Christian hafði verið mjög veikur af lifrarsjúkdómi,“ sagði Roeser í andlátstilkynningu á Instagram.
Christian og tvíburabróðir hans, Joseph Cousins, fóru saman með hlutverk stráksins Dominic í Kindergarten Cop og ýmsum öðrum myndum á tíunda áratugnum. Roeser segir að hann hafi verið samfeðra tvíburabræðrunum, alist upp í öðru ríki en þeir og því ekki kynnst þeim fyrr en á fullorðinsárum.
„Fyrir það ólst ég upp við að horfa á þá í Knots Landing og sem Dominic í Kindergarten Cop með Arnold Schwarzenegger. En þau hlutverk eru aðeins brotabrot af því hvernig ég mun minnast Christians,“ sagði Roeser.
Alls lék Cousins í sjö kvikmyndum og níu sjónvarpsseríum á leiklistarferli sínum sem spannaði um átta ár. Meðal þeirra kvikmynda má nefna Critters 3 (1991), Intruders (1992) og Twin Sitters (1994) og af sjónvarpsseríunum má helst nefna Knots Landing (1987-92) þar sem hann lék í 57 þáttum.
Eftir að leiklistarferlinum lauk starfaði Christian við sölu á húsgögnum og var jafnframt meðeigandi í CBD-fyrirtæki.