Fundur hefur ekki verið boðaður í kjaradeilu Icelandair og flugmanna, segir Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari.
Flugmenn Icelandair í Félagi íslenskra atvinnuflugmanna hafa samþykkt ótímabundnar verkfallsaðgerðir í leiguflugi félagsins. Þær eiga að hefjast á miðnætti 20. nóvember.
Ástráður segir að embættinu hafi borist verkfallsboðun flugmanna á föstudaginn. Næsta skref sé að boða deilendur á fund. Hann gaf ekki upp hvenær mætti búast við fundi. Ekki hefur verið haldinn formlegur fundur í yfir tvær vikur.
Ekki hefur heldur verið boðað til fundar í deilu Icelandair og flugvirkja. Síðasti fundur var á mánudaginn í síðustu viku.